

Bakgarðshlaupið fór fram í Öskjuhlíð um helgina, en hlaupið felur í sér að hlaupa 6,7 km á klukkustund þar til einn hlaupari stendur einn eftir sem sigurvegari. 210 hlauparar hlupu af stað í fyrsta hring klukkan níu á laugardagsmorgun og lauk keppninni rétt fyrir klukkan fimm nú í morgun, mánudag. Þórdís Ólöf Jónsdóttir sigraði með því að hlaupa 44 hringi sem er alls 294,8 kílómetrar.
Einhverjir velta fyrir sér hvort hlaup sem þessi séu holl fyrir hlaupara, einn af þeim er Patrekur Jaime Æðidrengur sem birti myndband í gær:
„Núna langar mér aðeins að fræða mig um út af því ég sé að Bakgarðshlaupið er í gangi og ég væri til í að einhver sem tekur þátt í þessu myndi svara fyrir mér hvað gerðist við hann í æsku til þess að honum líði það illa að hann þarf að hlaupa 200 km á 2 dögum. Út af því að það er eitthvað meira en að hafa verið kallaður feitur sem barn.“
Patrekur segist líka vilja vita frá íþróttafræðingi eða næringarfræðingi hvort þetta sé gott fyrir mann.
„Af því ég trúi því ekki að vera á vökunni að hlaupa í Elliðaárdalnum eða hvar sem þetta er í tvo daga sé actually gott fyrir líkama eða sál. Ég persónulega held að það sé skárra að vera í Kóngsbakka í Breiðholtinu að reykja krakk í tvo daga, ég held það sé skárra fyrir mann. En það er bara ég.
Er mér einum sem mér finnst þetta smá galið? Duglegt fólk sem gerir þetta, en something ain´t right skilurðu?“
@patrekurjaimee Pæling dagsins en annars duglegt fólk ✨ #íslenskt #fyp #fyrirþig ♬ son original – Piano Soin – Tutoriels