

Í umdæmi lögreglustöðvar 1 voru höfð afskipti af ökumanni vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Þetta var í „þriðja sinn eða oftar“ sem hann er stöðvaður réttindalaus og var bifreið mannsins haldlögð vegna endurtekinna brota, að því er fram kemur í skeyti lögreglu.
Í sama umdæmi er eitt heimilisofbeldismál til rannsóknar eftir nóttina.
Í umdæmi lögreglustöðvar 2, sem sinnir Hafnarfirði og Garðabæ, var tilkynnt um ungmenni á krossurum þar sem þau voru að spæna upp gras. Þeim var fylgt eftir með dróna að heimili sínu og eiga væntanlega yfir höfði sér einhvers konar refsingu. Í sama umdæmi var máli sinnt þar sem hótanir voru tilkynntar.
Í umdæmi lögreglustöðvar 4, sem sinnir Grafarvogi, Árbæ og Mosfellsbæ, hafði lögregla afskipti af réttindalausum ökumanni. Sá hefur raunar aldrei öðlast ökuréttindi og var þetta í fjórða sinn sem hann er kærður fyrir sama brot. Þá var hann með barn í bifreiðinni og var barnavernd látin vita.