fbpx
Mánudagur 11.maí 2026
Pressan

Enginn mætti til að syrgja Ian Huntley

Pressan
Mánudaginn 11. maí 2026 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Barnamorðinginn Ian Huntley hefur verið brenndur í kyrrþey án þess að nokkur syrgði hann, samkvæmt umfjöllun breska götublaðsins The Sun.

Huntley lést 52 ára að aldri í mars síðastliðnum eftir alvarlega árás í fangelsinu HMP Frankland í Durham-sýslu á Englandi. Hann var barinn til óbóta með málmstöng af samfanga sínum og lést af sárum sínum nokkrum dögum eftir árásina.

Hann afplánaði lífstíðardóm fyrir morðin á Holly Wells og Jessica Chapman í Soham árið 2002, en stúlkurnar voru aðeins tíu ára gamlar. Málið er eitt það umtalaðasta í breskri réttarfarssögu á síðustu áratugum.

Samkvæmt The Sun var lík Huntleys flutt frá Royal Victoria-sjúkrahúsinu í Newcastle í líkbrennslu í nágrenninu eftir andlát hans. Fjölskyldu hans stóð til boða styrkur fyrir útförinni að verðmæti um 3.000 punda, um 500 þúsund króna, en hún hafnaði boðinu af virðingu við aðstandendur fórnarlamba hans.

„Það var engin útför, engin athöfn og engir syrgjendur,“ hafði blaðið eftir heimildarmanni.

Sá sami sagði jafnframt: „Fjölskyldan var samstíga, hvernig hefði hann getað fengið útför eftir það sem hann gerði?“

Þá kom einnig fram að hugsanir fjölskyldunnar væru áfram hjá fórnarlömbunum og aðstandendum þeirra.

„Hann var brenndur og það var allt og sumt, ekkert meira,“ sagði heimildarmaðurinn samkvæmt The Sun.

Ösku Huntleys var síðar dreift á leynilegum stað af ættingja hans.

Dánarrannsókn sem hófst í síðasta mánuði komst að þeirri niðurstöðu að Huntley hefði látist af völdum höfuðáverka eftir barefli. Frekari rannsókn verður framkvæmd þegar sakamál gegn meintum árásarmanni hans, Anthony Russell, lýkur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Ofursti skefur ekki utan af því – Norðmenn geta ekki lengur gengið

Ofursti skefur ekki utan af því – Norðmenn geta ekki lengur gengið
Pressan
Í gær

Vilja gera Plútó að plánetu á nýjan leik

Vilja gera Plútó að plánetu á nýjan leik
Pressan
Í gær

Svona lengi getur þú setið áður en það verður hættulegt

Svona lengi getur þú setið áður en það verður hættulegt
Pressan
Í gær

Að borða sama matinn daglega getur haft áhrif á þyngdartap

Að borða sama matinn daglega getur haft áhrif á þyngdartap
Pressan
Fyrir 2 dögum

Veitingahúsaeigandi í Houston talinn hafa myrt fjölskyldu sína

Veitingahúsaeigandi í Houston talinn hafa myrt fjölskyldu sína
Pressan
Fyrir 3 dögum

Kynlífsleikur endaði með ósköpum: „Þetta var það sem hann vildi“

Kynlífsleikur endaði með ósköpum: „Þetta var það sem hann vildi“