

Arnar Grétarsson, fótboltaþjálfari til margra ára og frambjóðandi Viðreisnar í Kópavogi, var gestur Helga Fannars í nýjasta þætti af Íþróttavikunni.
Arnar var beðinn um að koma með sitt álit á gangi mála hjá sínu fyrrum félagi Val, sem hefur farið breyttar leiðir undanfarið.
„Ég er enn að reyna að átta mig á hlutunum. Ég verð að vera heiðarlegur, ég veit ekki alveg á hvaða leið þeir eru,“ sagði Arnar.
„Það er klár stefna í Val, sama í hverju það er, að keppa um titla. Þeir hafa fjármagnið og annað. Það eru að koma upp ungar kynslóðir í Val með byggðinni þarna en fyrir svona 20 árum síðan voru yngri flokkar Vals mjög takmarkaðir. Þá þarftu að sækja leikmenn og mér finnst ekkert að því. Ef þú vilt fara í yngri leikmenn, sæktu þá bestu ungu leikmennina. Það á ekki að vera bara stefna að spila ungum, þeir þurfa að vera góðir.“
Arnar telur jafnframt að ný stefna Vals sé ekki nógu skýr.
„Valur er með mjög góða leikmenn en menn eru í óvissu með hvað er að fara að gerast, eru ekki einu sinni vissir hvort þeir verða topp sex. Ég á enn eftir að sjá það því breiddin er það mikil.
Þegar hugmyndafræðin er ekki alveg klár getur þetta farið í allar áttir. Ég veit ekki alveg hvað er í gangi. Mér finnst að fótboltamenn með þekkingu á leiknum og hafa spilað á háu stigi ættu að leiða svona félög,“ sagði hann, og furðaði sig enn fremur á að Valur hafi ekki notað sterkara byrjunarlið á undirbúningstímabilinu.
Nánar í spilaranum.