

Parið Terri og Ryan frá Cheshire í Englandi fer óvenjulega leið í lífinu. Þau ákváðu fyrir nokkru að snúa sér að klámframleiðslu. Fyrst gerðu þau efni saman en buðu svo til sín gestum, en þannig uppgötvuðu þau að áhorfendur þeirra höfðu mestan áhuga á að sjá Ryan stunda kynlíf með öðrum karlmönnum. Þau leyfðu markaðslögmálinu að ráða. Eftirspurnin var eftir Ryan að leik með öðrum karlmönnum og þannig skyldi framboðið þeirra vera. Ryan er samt hvorki samkynhneigður né tvíkynhneigður.
Á meðan Ryan leikur sér með öðrum mönnum stendur Terri á bak við myndavélina þar sem hún er bæði tökumaður og leikstjóri. Truly-rásin á YouTube ræddi við parið sem lýsti því svo að klámævintýri þeirra hafi byrjað árið 2021. Þarna var Ryan að ljúka afplánun í fangelsi og hann vantaði eitthvað að gera. Terri hafði áður prófað sig smá áfram í klámi en heyrði það úr öllum áttum að mestur peningurinn væri í hommakláminu.
„Ég fór að taka upp sjóðheitar senur með öðrum karlmönnum því ég stórgræði á því,“ sagði Ryan en hann segist þéna um milljón á mánuði.
Terri segist ekki finna fyrir afbrýðisemi þó að kærasti hennar sé sífellt að sænga hjá öðrum karlmönnum fyrir framan myndavélarnar. Hún óttast ekki að Ryan fari frá henni. Samband þeirra sé sterkt og Ryan sé gagnkynhneigður þó að starf hans bendi til annars.
„Við erum klárlega ekki að gera þetta okkur til skemmtunar, þetta er vinna,“ segir Ryan sem bætir við að hann og Terri séu með tiltekin mörk til að vernda sambandið, svo sem að mótleikarar Ryan séu fagmenn en ekki bara einhverjir menn úti í bæ.