
Frönsk yfirvöld hafa fordæmt óeirðir sem brutust út í París eftir að PSG tryggði sér sæti í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu með jafntefli gegn Bayern Munchen í gærkvöldi.
Samkvæmt innanríkisráðherra Frakklands, Laurent Nunez, voru 127 manns handteknir á höfuðborgarsvæðinu, þar af 107 í París sjálfri. Þá slösuðust 11 einstaklingar, þar af einn alvarlega, auk þess sem 23 lögreglumenn hlutu minniháttar meiðsli.
Þó stór hluti hátíðarhaldanna hafi farið friðsamlega fram, blossuðu upp óeirðir víða í miðborginni þar sem kveikt var í ruslatunnum og bílum og lögregla þurfti að beita táragasi.
Yfirvöld segja að um sé að ræða síendurtekið vandamál eftir stórsigra PSG. Lögregla boðar enn harðari aðgerðir ef það sama veðrur uppi á tengingnum í kringum úrslitaleikinn sjálfan, en hann fer fram í Búdapest 30. maí. Andstæðingur PSG þar verður Arsenal.