

Sagnaheimur Astridar Lindgren heillar alltaf og nú er hægt að prjóna fallegar flíkur í anda allra helstu persónanna!
Í fallegu prjónabókinni Ljúflingar: Prjónað úr sögum eftir Astrid Lindgren eru 46 uppskriftir, bæði fyrir börn og fullorðna. Hvern dreymir ekki um derhúfuna og peysurnar hans Emils eða Kattholtskjólinn og svuntuna hennar Ídu? Línupeysan er í stærðum fyrir börn og fullorðna og vetrarpeysur Tomma og Önnu eru litríkar og fallegar. Hér er líka að finna uppskrift að herra Níelsi, apanum hennar Línu, og sæta og mjúka grísbirninum hennar Lottu en sjálf fær hún doppóttan kjól. Stemningin á Saltkráku, litlu eyjunni í sænska skerjagarðinum, skilar sér meðal annars í rúllukragapeysu Skottu og samfestingnum hennar Skrollu. Ef hugurinn leitar í ennþá meiri ævintýri þá eru uppskriftir bæði að peysum bræðranna Ljónshjarta sem og hettukraga og skjóðu Ronju ræningjadóttur.

Hanne Andreassen Hjelmås og Torunn Steinsland eru hönnuðir KlompeLOMPE og hafa þær gefið út fjölmargar vinsælar prjónabækur sem njóta mikilla vinsælda í Noregi og víðar. Áður hafa komið út á íslensku prjónabækurnar Ljúflingar – prjónað á stóra og smáa, Ljúflingar – prjónað fyrir útivistina og Ljúflingar – uppáhaldsföt á yngstu börnin. Ásdís Sigurgestsdóttir og Guðrún B. Þórsdóttir þýddu.
Bókin fæst hjá Forlaginu og flestum bókabúðum landsins.
Hér birtum við með leyfi höfunda og Forlagsins uppskrift að apanum Herra Níels, besta vini Línu Langsokk, mjúkum og góðum vin fyrir krakka á öllum aldri.




