fbpx
Fimmtudagur 07.maí 2026
433Sport

Láta stórliðin vita hver verðmiðinn er

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 7. maí 2026 21:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Atletico Madrid hefur sett 100 milljóna evra verðmiða á framherjann Julian Alvarez, samkvæmt spænska miðlinum Mundo Deportivo.

Arsenal, Barcelona og PSG hafa öll verið orðuð við Argentínumanninn, sem kom til Atletico frá Manchester City sumarið 2024. Hefur hann verið frábær í spænsku höfuðborginni.

Alvarez er samningsbundinn Atletico til 2030 og félagið er því í sterkri stöðu og getur leyft sér að verðleggja hann hátt.

Ljóst er að Arsenal og PSG eru sennilega betur í stakk búin til að ganga að 100 milljóna evra verðmiða en Börsungar, í ljósi fjárhagsstöðu þeirra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Arsenal og Barcelona ætla að slást við City

Arsenal og Barcelona ætla að slást við City
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Arsenal boðar það að selja nokkra leikmenn í sumar

Arsenal boðar það að selja nokkra leikmenn í sumar
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Segir upp störfum eftir þrettán ár og mikla velgengni – Þessi mynd frá fjögurra ára dóttur hennar breytti miklu

Segir upp störfum eftir þrettán ár og mikla velgengni – Þessi mynd frá fjögurra ára dóttur hennar breytti miklu
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

United að sækja sér þrjá milljarða í aukatekjur

United að sækja sér þrjá milljarða í aukatekjur