fbpx
Miðvikudagur 06.maí 2026
Eyjan

Athafnamaður ánægður með Kristrúnu en ekki Loga og flokkinn – „Óhreinlyndi og eiginhagsmunagæsla“

Eyjan
Miðvikudaginn 6. maí 2026 13:30

Kristrún Frostadóttir og Logi Már Einarsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar er nú á ferð um landið í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna. Hún er væntanleg til Fjallabyggðar þar sem hún mun halda opin fund í kvöld ásamt Loga Má Einarssyni menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og 1. þingmanni Norðausturkjördæmis og á fundinum verða einnig frambjóðendur flokksins í Fjallabyggð. Róbert Guðfinnsson athafnamaður á Siglufirði ritar af því tilefni pistil á Facebook þar sem hann hrósar Kristrúnu en ekki er hægt að segja að Logi og Samfylkingin sjálf fái jafn hlýleg orð.

Róbert segir um Kristrúnu:

„Þó að ég muni seint kjósa flokk hennar þá hef ég haft gaman af innkomu hennar í íslensk stjórnmál. Það má segja að hún sé ferskur vindur í oft einsleitu umhverfi.“

Athafnamaðurinn hefur hins vegar ekki jafn mikið álit á Loga:

„Með henni í för er þingmaður kjördæmisins Logi Einarsson sem er jafnframt ráðherra menningar, nýsköpunar og háskóla. Fjallabyggð hefur sennilega aldrei haft ráðherra í kjördæminu sem er jafn lítið tengdur inn í atvinnulíf og stöðu samfélagsins.“

Of hratt

Ljóst er að Kristrún stoppar ekki lengi á hverjum stað á ferð sinni um landið. Í morgun fundaði hún á Raufarhöfn og í hádeginu á Húsavík. Klukkan 17 verður fundur með henni á Akureyri og fundalota dagsins endar síðan í Fjallabyggð en fundurinn þar verður á Siglufirði og hefst klukkan 20.

Róbert telur ljóst að á slíkri hraðferð fái Kristrún ekki mikla innsýn inn í raunveruleikann á hverjum stað.

Hann gagnrýnir forystumenn Samfylkingarinnar í Fjallabyggð. Flokkurinn býður í kosningunum eftir 10 daga fram lista í samvinnu við óháða frambjóðendur, undir merkjum Jafnaðarmannafélags Fjallabyggðar og óháðra, en félagið er eitt af aðildarfélögum Samfylkingarinnar og listinn er með listabókstaf flokksins, S.

Í kosningunum 2022 var boðinn fram í Fjallabyggð listi Jafnaðarfólks og óháðra sem var með listabókstafinn A en framboðið fékk 36,15 prósent atkvæða og 3 bæjarfulltrúa en 7 sitja í bæjarstjórn Fjallabyggðar. Framboðið myndaði meirihluta með Sjálfstæðisflokknum.

Jafnaðarmenn í Fjallabyggð og Guðfaðirinn

Róbert fer ekki leynt með óánægju sína með forystumenn Jafnaðarmanna í Fjallabyggð:

„Samfylkingin eða jafnaðarmenn hafa um árabil verið lík í lestinni í samfélaginu Fjallabyggð, með áhrifavalda og fulltrúa þar sem óhreinlyndi og eiginhagsmunagæsla hefur of oft verið aðalsmerkið. Fyrir þá sem þurfa að lifa við þetta er ansi skondið að hið nýja útspil flokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar sé: „Tökum ábyrgð hvert á öðru.“ Ef Kristrún ætlar að sjá flokk sinn verða að því sem hana dreymir um þá þarf hún að hreinsa til í lestinni. Upplagt væri að byrja í Fjallabyggð. Þar er nóg af auðu iðnaðarhúsnæði — þó líklega væri betra að nota það í atvinnuuppbyggingu en líkbrennsluofna.“

Er þessi nýja pistill framhald af pistli Róberts í gær þar sem hann gagnrýnir forystumenn Jafnaðarmanna í bæjarstjórn og vill meina að þeir hafa skaðað atvinnulífið í bænum með því að hræða fólk frá því að keyra til Siglufjarðar með fullyrðingum um að hættulegt væri að aka um Siglufjarðarveg og Strákagöng. Róbert nefnir engin nöfn en vill meina að einhver sem hann kallar „Guðföðurinn“ standi á bak við þetta. Er Róbert spurður í athugasemdum hvort umræddur maður sé Kristján Möller fyrrum þingmaður og ráðherra Samfylkingarinnar sem er eins og Róbert meðal þekktustu íbúa Siglufjarðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Vinsælasta samvinnuhreyfing Evrópu

Sigmundur Ernir skrifar: Vinsælasta samvinnuhreyfing Evrópu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ragnar Þór Ingólfsson: Erum ekki að boða bara eitthvað eins og síðasta ríkisstjórn – uppbyggingin er áþreifanleg

Ragnar Þór Ingólfsson: Erum ekki að boða bara eitthvað eins og síðasta ríkisstjórn – uppbyggingin er áþreifanleg
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Háskólaprófessor: Andstæðingar aðildar hengja sig í algjör smáatriði – drepa innihaldsríkri umræðu á dreif

Háskólaprófessor: Andstæðingar aðildar hengja sig í algjör smáatriði – drepa innihaldsríkri umræðu á dreif
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ragnar Þór Ingólfsson: Átakið ekki bara í Reykjavík – uppbygging fram undan á landsbyggðinni

Ragnar Þór Ingólfsson: Átakið ekki bara í Reykjavík – uppbygging fram undan á landsbyggðinni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Halla Hrund Logadóttir: Meiri samvinnu, minni pólitík – þarf að vera skikk á hlutunum

Halla Hrund Logadóttir: Meiri samvinnu, minni pólitík – þarf að vera skikk á hlutunum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir: Uppsögn ótímabundinna leigusamninga

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir: Uppsögn ótímabundinna leigusamninga