
Jose Mourinho gæti stýrt Benfica í gegnum heilt tímabil portúgölsku deildinni án þess að tapa leik, en samt án þess að vinna titilinn.
Þrátt fyrir að vera ósigraðir eru Benfica níu stigum á eftir Porto þegar tvær umferðir eru eftir, sem eru orðnir meistarar þó tveimur umferðum sé ólokið. Porto hefur aðeins tapað einum leik á tímabilinu.
Helsta ástæðan er fjöldi jafntefla. Benfica hefur gert tíu slík, sex fleiri en Porto.
Ef Benfica tapar ekki gegn Braga og Estoril Praia lýkur liðið tímabilinu ósigrað, en slíkt hefur áður gerst án þess að skila titli, síðast tímabilið 1977–1978.