fbpx
Mánudagur 04.maí 2026
Fréttir

Sendu Kjartani „risa ljós“

Ritstjórn DV
Mánudaginn 4. maí 2026 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Skeytin gengu á milli Kjartans Magnússonar borgarfulltrúa og fyrrum samherja hans í Sjálfstæðisflokknum á fundi borgarráðs fyrir helgi. Vildi Kjartan meina að hans gamli flokkur styddi Borgarlínu en hans gömlu félagar mótmæltu því. Skipst var á bókunum sem enduðu með nokkuð óræðum skilaboðum Sjálfstæðismanna til þessa fyrrum flokksmanns síns.

Eins og kunnugt er sagði Kjartan sig úr Sjálfstæðisflokknum fyrir nokkru en hann er nú með stöðu áheyrnarfulltrúa í borgarráði en Hildur Björnsdóttir og Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir sitja í ráðinu fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins.

Fyrir fundinn lagði Kjartan fram tillögu sem gengur út á aðteknar verði upp viðræður við ríkið og sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu um að hætt verði við smíði Fossvogsbrúar, sem er hluti af framkvæmdum vegna Borgarlínu. Lagði Kjartan til að þess í stað fari það fé, sem ætlað hafi verið í brúarsmíðina, í aðrar samgöngubætur á höfuðborgarsvæðinu. Þá verði strætisvagnatengingar milli Reykjavíkur og Kópavogs bættar með því að vestari hluti Vesturhlíða verði lagfærður og gerður að svokallaðri strætógötu, þar sem einungis yrði heimilaður akstur strætisvagna og neyðarbifreiða.

Frávísun

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og fulltrúar meirihlutaflokkanna samþykktu að vísa tillögu Kjartans frá.

Kjartan lagði þá fram bókun til að mótmæla niðurstöðunni. Vildi hann meina að tillaga hans væri sennilega mesta sparnaðartillaga, sem flutt hafi verið á vettvangi borgarstjórnar:

„Leitt er að slíkri tillögu sé hafnað, án skoðunar, af stuðningsflokkum borgalínuverkefnisins, þ.e. fulltrúum Sjálfstæðisflokksins og vinstri flokkanna, enda hefur aldrei verið meiri þörf á aðhaldi í opinberum fjármálum en nú.“

Benti Kjartan á Fossvogsbrú yrði 270 metra löng stálbrú, sem tengja eigi saman tvö jaðarsvæði, Kársnes og Nauthólsvík. Brúin muni hafa mjög takmarkaðan almennan tilgang og flest bendi til þess að hún verði óarðbær og hafi neikvætt núvirði eins og orgarlínuverkefnið í heild sinni:

„Margar aðrar samgönguframkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu eru arðbærar og miklu þarfari. Ljóst er að kostnaður við brúarsmíðina verður ekki undir ellefu milljörðum króna. Vegna gífurlegs kostnaðar ætti að hætta við Fossvogsbrú og verja fénu til þarfari framkvæmda. Ljóst er að hægt væri að stórbæta strætisvagnatengingar milli Nauthólsvíkur (Háskólans í Reykjavík) og Kópavogs með aðgerðum, sem kosta myndu um 1% af áætluðum kostnaði við Fossvogsbrú.“

Arðbærni

Fulltrúar meirihlutaflokkanna svöruðu Kjartani með bókun um að Borgarlína væri þvert á móti arðbær og ein mikilvægasta lausnin á samgönguvanda höfuðborgarsvæðisins.

Ragnhildur Alda og Hildur lögðu einnig fram bókun og andmæltu orðum Kjartans um að Sjálfstæðisflokkurinn styddi borgarlínu:

„Sem fyrr gerir borgarfulltrúinn Kjartan Magnússon fulltrúum Sjálfstæðisflokksins upp skoðanir með ódýrum hætti í pólitískum tilgangi. Afstaða Sjálfstæðisflokksins til Borgarlínu er skýr; flokkurinn kallar eftir gagngerri endurskoðun verkefnisins með áherslu á hagkvæmni, forgangsröðun og raunhæfa framkvæmd. Framkvæmdir við Fossvogsbrú eru þegar hafnar og því liggur fyrir að tillaga sú sem vísað er til er ekki tæk til afgreiðslu. Jafnframt er ljóst að undirbúningur næsta áfanga er langt kominn og útboð þegar farið fram. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa áður lýst verulegum áhyggjum af kostnaði við framkvæmdina og ítreka mikilvægi þess að tryggð verði fullnægjandi aðstaða fyrir siglingar á nýjum stað.“

Að styðja eða ekki styðja

Kjartan svaraði að bragði og sagði margoft hafi komið í ljós að Sjálfstæðisflokkurinn styðji borgarlínu og vísaði í atkvæðagreiðslur á Alþingi þar sem afstaða þingmanna flokksins til Borgarlínu hefðu komið fram. Þá væri Borgarlína sérstakt áherslumál núverandi oddvita Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn ( Hildar Björnsdóttur, innsk. DV) eins og margoft hafi komið fram í ræðu og riti:

„Það er mjög sérstakt að frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins reyni nú á lokaspretti kosningabaráttunnar að senda óljós skilaboð um að þeir styðji ekki lengur Borgarlínu. Þeir segja þó aldrei berum orðum að þeir séu á móti þessu risavaxna opinbera verkefni heldur tala einungis óskýrt um að þeir vilji laga það. Þeir útskýra þó ekki nákvæmlega hvað felst í slíkri lagfæringu eða hvað hún myndi kosta.“

Kjartan sem gekk til liðs við Miðflokkinn, en er formlega séð óháður bogarfulltrúi þar sem flokkurinn fékk ekki sæti í borgarstjórn í kosningunum 2022, segir flokkinn hins vegar þann eina í borgarstjórn, sem hafi afdráttarlaust þá skoðun að hætta beri við borgarlínuverkefnið en þess í stað skuli núverandi almenningssamgöngukerfi stórbætt með ýmsum hætti.

Hildur og Ragnhildur Alda svöruðu með stuttri bókun en frekari bókanir voru ekki lagðar fram:

„Gagnbókun fulltrúans dæmir sig sjálf og fulltrúarnir senda honum risa ljós.“

Hvað nákvæmlega átt er við með þessu verða lesendur sjálfir að meta

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Úthúða Ara og vara Reykvíkinga við því að kjósa Miðflokkinn – „Hefur sýnt konum kvenfyrirlitningu bara frá því ég kynntist honum fyrst“

Úthúða Ara og vara Reykvíkinga við því að kjósa Miðflokkinn – „Hefur sýnt konum kvenfyrirlitningu bara frá því ég kynntist honum fyrst“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kona í Vestmannaeyjum sökuð um kynferðislega áreitni við sjö konur

Kona í Vestmannaeyjum sökuð um kynferðislega áreitni við sjö konur
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Virtur miðill fjallar um sundlaugamenningu Íslands og greinir frá áhyggjum Íslendinga – „Við viljum halda þessu út af fyrir okkur“

Virtur miðill fjallar um sundlaugamenningu Íslands og greinir frá áhyggjum Íslendinga – „Við viljum halda þessu út af fyrir okkur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Danska konan skuldar Gunnari um 11 milljónir – „Ég er alveg brjálaður yfir þessu“

Danska konan skuldar Gunnari um 11 milljónir – „Ég er alveg brjálaður yfir þessu“
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Ebba segist hafa bent á leiðir til að spara í rekstri LSH – „Kurteislega bent á að það væri líklega bara best að þegja“

Ebba segist hafa bent á leiðir til að spara í rekstri LSH – „Kurteislega bent á að það væri líklega bara best að þegja“
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Furðar sig á viðbrögðum frambjóðenda við ábendingu – „Sjálfstæðisflokkurinn eins og hann leggur sig er hlaupinn í felur“

Furðar sig á viðbrögðum frambjóðenda við ábendingu – „Sjálfstæðisflokkurinn eins og hann leggur sig er hlaupinn í felur“