

Benjamin Šeško var afar ánægður eftir 2-1 sigur Manchester United á Brentford og segir liðið verða að halda áfram að berjast til loka tímabilsins.
Šeško skoraði annað mark United í leiknum og sagði eftir leik að sigurinn hefði verið verðskuldaður. „Þetta er frábær tilfinning. Við vissum að þetta yrði erfiður leikur en okkur tókst að halda út og við áttum sigurinn skilið,“ sagði hann.
Hann lagði áherslu á mikilvægi góðrar byrjunar. „Það skiptir miklu máli hvernig við byrjum leiki. Það gaf stuðningsmönnum orku og við nýttum það með tveimur mörkum.“
Framherjinn segir einnig að honum líði betur með hverjum leik og að tengingin við liðsfélaga hans sé að styrkjast.
Šeško hrósaði sérstaklega Casemiro. „Hann er vinnuvél, hættir aldrei. Við ætlum að nýta hann eins lengi og við getum áður en hann fer.“
Þá hrósaði hann samstarfi sínu við Bruno Fernandes og sagði mikla vinnu á æfingasvæðinu vera farin að skila sér.
Að lokum sagði hann United þurfa að halda áfram af fullum krafti í baráttunni um Meistaradeildarsæti.