
Niðurstöður kínverskrar rannsóknar benda til að það sé ekki skynsamlegt að borða alla hluta kjúklinga. Researchgate skýrir frá þessu.
Þess á meðal er húðin en mörgum finnst hún hið mesta ljúfmeti. En í rannsókninni er því slegið föstu að húðin samanstendur nánast eingöngu af fitu og að bakteríur geti leynst í henni þrátt fyrir að kjúklingurinn hafi verið eldaður við mikinn hita.
Sums staðar þykja kjúklingalungu hið mesta lostæti og eru þau mikið notuð í hefðbundinni matargerð. Vísindamennirnir segja að lungun geti hýst bæði örverur og sníkjudýr sem drepast ekki við mikinn hita.
Haus kjúklinga er heldur ekki eitthvað sem fólk ætti að borða miðað við niðurstöður rannsóknarinnar. Hann er nefnilega staður þar sem hættuleg efni safnast fyrir, til dæmis skordýraeitur úr fóðri eða menguð efni úr náttúrunni.
En sem betur fer er í fínu lagi að borða aðra hluta kjúklinga og því engin ástæða til að hætta því.