fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
Pressan

Rússar flýja vígvöllinn – „Það var útilokað að hægt væri að lifa þessa orustu af“

Pressan
Laugardaginn 2. maí 2026 14:30

Lík rússneskra hermanna í Lyman. Mynd:EPA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er yfirleitt reiknað með að hermenn séu reiðubúnir til að fórna lífi sínu fyrir ættjörðina en það þýðir ekki að þeir séu reiðubúnir til að láta senda sig í orustu sem þeir telja útilokað að vinna.

Nú virðist sem margir rússneskir hermenn í Úkraínu telji að farið hafi verið yfir þessi mörk.

„Ég hafði tvö möguleika: annað hvort að vera drepinn eða taka áhættuna og skjóta sjálfan mig rétt fyrir fram úkraínsku varnarlínuna. Svo ég skaut mig,“ sagði einn liðhlaupinn.

„Af fimmtán mönnum í herdeildinni minni, voru þrír eftir. Ég skaut og særði þá alla. Leyfum þeim að fara særðum heim. Hvað myndu þeir gera án mín?“ sagði annar liðhlaupi.

Í umfjöllun Frontelligence Insight kemur fram að liðhlaup úr rússneska hernum hafi færst mjög í aukana. Talið er að allt að 70.000 hermenn, eða tíundi hluti liðsaflans, hafi gerst liðhlaupar á síðasta ári.

Margir reyna að flýja til nágrannaríkja eins og Kasakstan eða Armeníu þrátt fyrir að þeir eigi á hættu að vera handteknir eða neyddir til að snúa aftur á vígvöllinn.

Yevgeny Korobov, fyrrum liðsforingi, sagði að hermennirnir væru sendir í orustu þar sem aðstæðurnar væru algjörlega vonlausar.

„Það var útilokað að hægt væri að lifa þessa orustu af,“ sagði hann.

Hann særðist og náði síðan að flýja frá Rússlandi. Hann býr nú í Kasakstan og bíður eftir að umsókn hans um hæli verði afgreidd.

Aðrir hermenn lýstu svokölluðum „kjötárásum“ þar sem stórir hópar eru sendir í orustu án þess að eiga mikla möguleika á að lifa af.

„Go to the Forest“ samtökin veita hermönnum lagalega og praktíska hjálp en önnur samtök taka beinan þátt í að flytja liðhlaupa yfir rússnesku landamærin. Sum þeirra hvetja þá til að yfirgefa hersveitir sínar og forða sér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Kynntist stúlkunni þegar hún var 11 ára gömul – Eftir morðið keypti hann keðjusagir, uppblásna sundlaug og líkpoka

Kynntist stúlkunni þegar hún var 11 ára gömul – Eftir morðið keypti hann keðjusagir, uppblásna sundlaug og líkpoka
Pressan
Fyrir 2 dögum

92 ára maður sakaður um að myrða 87 ára eiginkonu sína

92 ára maður sakaður um að myrða 87 ára eiginkonu sína
Pressan
Fyrir 3 dögum

Á yfir höfði sér þunga refsingu fyrir að sleikja rör

Á yfir höfði sér þunga refsingu fyrir að sleikja rör
Pressan
Fyrir 3 dögum

Óhugnanleg ráðgáta leyst – Lík fannst sundurbútað í ferðatöskum árið 1998

Óhugnanleg ráðgáta leyst – Lík fannst sundurbútað í ferðatöskum árið 1998
Pressan
Fyrir 4 dögum

Missti dóttur sína tíu árum eftir mislingasmit – þetta vill hún að allir foreldrar viti

Missti dóttur sína tíu árum eftir mislingasmit – þetta vill hún að allir foreldrar viti
Pressan
Fyrir 4 dögum

Fjórir handteknir í 43 ára gömlu morðmáli – hlaðvarp gegndi lykilhlutverki

Fjórir handteknir í 43 ára gömlu morðmáli – hlaðvarp gegndi lykilhlutverki
Pressan
Fyrir 5 dögum

Dularfull dauðsföll vísindamanna ekki bara bundin við Bandaríkin

Dularfull dauðsföll vísindamanna ekki bara bundin við Bandaríkin
Pressan
Fyrir 5 dögum

Foreldrar sakaðir um gáleysi eftir að sonur þeirra kastaði styttu fram af svölum – þrítug kona lést

Foreldrar sakaðir um gáleysi eftir að sonur þeirra kastaði styttu fram af svölum – þrítug kona lést