fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Pressan

Flugfreyja deilir umdeildri skoðun: Barnafjölskyldur ættu að ganga síðastar um borð

Pressan
Mánudaginn 27. apríl 2026 21:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjölskyldur með ung börn fá oft forgang þegar kemur að því að innrita farþega í flug. Fyrrverandi flugfreyja hefur þó aðra skoðun, sem vakti töluverða umræðu.

Í TikTok myndbandi sínu, sem fengið hefur yfir tvær milljónir áhorfa, segir fyrrum flugfreyjan Laura frá Flórída: „Ég held að fjölskyldur með börn ættu að fara SÍÐAST um borð…“

Eftir að hafa deilt eigin pirrandi reynslu af því að fara um borð með unga syni sínum skrifaði hún að hún hefði „eytt árum í að horfa á fjölskyldur fara fyrst um borð og smám saman fór allt úr böndunum jafnvel áður en við lokuðum útganginum.“

Leggur Laura til að fjölskyldur með ung börn „fari síðast um borð. Setjist niður. Strax farið af stað. Barnið veit aldrei muninn … Réttindi þess að fara fyrst um borð eru gildra. Ég hef notað þau í mörg ár og ég er ekki fyrr en núna að viðurkenna það,“ sagði hún að lokum.

@laurainsouthflorida Okay don’t come for me but I think families with babies should board LAST. I know. I KNOW. And yes I used to be a flight attendant. I have seen things. I have opinions. This is one of them. Every time we pre-board Oliver we spend an extra 25 minutes strapped into seats going absolutely nowhere while every other human slowly files past us making faces at him like he’s a zoo exhibit. He’s fine for the first 10 minutes. Then he’s done. DONE. And we still haven’t even pushed back from the gate. I spent years watching families board first and slowly unravel before we even closed the door. Board last. Sit down. Take off immediately. Baby never knows the difference. Trust the ex-flight attendant on this one. The pre-board privilege is a trap. I handed it out for years and I’m only now admitting that. You’re welcome. Or I’m sorry. Depending on how strongly you feel about this. #flyingwithababy #travelingwithababy #babytravel #exflightattendant #flightattendantlife ♬ original sound – laurainsouthflorida

Yfir 4000 athugasemdir hafa verið skrifaðar við myndbandið. Margir komu með það sem þeir töldu vera enn betri tillögur.

„Hlustið á mig, annað foreldrið fer fyrst um borð, kemur farangri og öðru fyrir og gerir allt klárt á meðan hitt foreldrið losar orkuna úr barninu og fer síðast um borð með því!“ skrifaði einn.

„Ég mun aldrei skilja af hverju þau fara ekki bara fyrst um borð aftast í flugvélina,“ sagði annar.

„Heyrið mig, þau fara bara alls ekki um borð …“ bætti einn dónalegur við.

Einn var á því fjölskyldur ættu áfram að fara fyrst um borð.

„Verður að fá rými fyrir barnavagninn og setja barnastól í sætið. Þetta virkar ef tveir fullorðnir eru að ferðast saman með barn eða börn, en ef maður er einn með barn eða börn þá verður maður að fara fyrst um borð.“

„Maðurinn minn fer fyrst inn, setur barnasæti í sætin, skipuleggur hlutina sem við þurfum fyrir flugið, setur upp það sem er ekki nauðsynlegt og passar upp á að auðvelt sé að ná í nokkra „hvað ef“ hluti. Svo þegar allir eru komnir um borð kem ég inn með strákana okkar. Besta sem ég hef gert. Engin þörf á að hafa börnin sitjandi lengur í vélinni en þau þurfa,“ sagði ein móðir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

„Guð öngþveitis“ stefnir í átt að jörðinni

„Guð öngþveitis“ stefnir í átt að jörðinni
Pressan
Í gær

Wagnerhópurinn lifir enn en er nú notaður til að standa fyrir fjölþátta árásum í Evrópu

Wagnerhópurinn lifir enn en er nú notaður til að standa fyrir fjölþátta árásum í Evrópu