fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Pressan

Dularfull dauðsföll vísindamanna ekki bara bundin við Bandaríkin

Pressan
Mánudaginn 27. apríl 2026 07:00

Zhang Xiaoxin og Feng Yanghe.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Áhyggjur hafa aukist á alþjóðavettvangi vegna dularfullra dauðsfalla og mannshvarfa meðal vísindamanna. Greint hefur verið frá þó nokkrum fjölda slíkra mála í Bandaríkjunum. Það er hins vegar víðar en þar sem vísindamenn hafa látist eða horfið.

Undanfarin ár hafa að minnsta kosti níu kínverskir vísindamenn látist við aðstæður sem opinberlega eru skráðar sem slys, veikindi eða óútskýrð atvik. Þó að hverju tilviki sé lýst með tiltölulega einföldum skýringum hafa þau í heild sinni vakið spurningar, sérstaklega þar sem margir þeirra störfuðu á viðkvæmum sviðum, til dæmis við þróun gervigreindar fyrir hernað, geimvarnir og svokallaðra hypersonic-vopna.

Spurningum ósvarað

Mail Online fór yfir málið á dögunum en eitt umtalaðasta málið varðar dauða Feng Yanghe, 38 ára prófessors í varnartæknifræði, sem lést í bílslysi í Peking í júlí 2023.

Hann hafði að sögn unnið að hermunum tengdum mögulegri innrás í Taívan áður en hann lést í bílslysi seint um nótt í Peking, að því er Newsweek greinir frá.

Opinberar skýrslur segja að Feng hafi verið að yfirgefa vinnufund þegar slysið varð um klukkan 2:35 að nóttu. En vangaveltur jukust eftir að hann var sagður í minningargrein hafa „fórnað sér við framkvæmd opinberra starfa“, orðalag sem sumum þótti óvenjulegt vegna umferðarslyss.

Frekari athygli vakti að hann var grafinn í áberandi kirkjugarði sem er venjulega frátekinn fyrir þjóðþekkta einstaklinga.

Svipuð tilvik hafa komið upp í Kína, meðal annars dauði geimsérfræðingsins Zhang Xiaoxin árið 2024 og efnafræðingsins Zhou Guangyuan árið 2023, en í síðarnefnda tilvikinu var engin opinber dánarorsök gefin upp. Þá hafa fleiri vísindamenn látist eða horfið við óljósar aðstæður, þar á meðal sérfræðingar í örrafeindatækni, drónum og gagnavísindum.

Höfðu aðgang að viðkvæmum upplýsingum

Á sama tíma hafa yfirvöld í Bandaríkjunum verið undir þrýstingi vegna svipaðra mála eins og DV greindi frá á dögunum.

Ellefu vísindamenn horfnir eða látnir – þingmenn krefjast svara

Að minnsta kosti 11 bandarískir sérfræðingar með tengsl við NASA, kjarnorkurannsóknir og varnartengd verkefni hafa horfið eða fundist látnir á undanförnum árum. Margir þeirra höfðu aðgang að viðkvæmum upplýsingum, sem hefur ýtt undir vangaveltur um möguleg tengsl milli málanna.

Málið vakti sérstaka athygli eftir að fyrrverandi hershöfðinginn William Neil McCasland hvarf í febrúar síðastliðnum.

Bandarískir þingmenn hafa nú krafist þess að FBI, varnarmálaráðuneytið og aðrar stofnanir hefji formlegar rannsóknir á málunum með vísan til þjóðaröryggis Bandaríkjanna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

„Guð öngþveitis“ stefnir í átt að jörðinni

„Guð öngþveitis“ stefnir í átt að jörðinni
Pressan
Í gær

Wagnerhópurinn lifir enn en er nú notaður til að standa fyrir fjölþátta árásum í Evrópu

Wagnerhópurinn lifir enn en er nú notaður til að standa fyrir fjölþátta árásum í Evrópu