

Jim Ratcliffe er sagður hikandi við að ráða Michael Carrick sem fastan knattspyrnustjóra Manchester United. Eigandinn er sagður hugsi yfir málinu samkvæmt Athletic.
Carrick, sem hefur stýrt liðinu tímabundið, átti fund með Ratcliffe á æfingasvæði félagsins fyrr í vikunni, en enn ríkir óvissa um framtíð hans. Forráðamenn United vilja samkvæmt heimildum bíða með endanlega ákvörðun þar til ljóst er hvort liðið tryggi sér sæti í Meistaradeild Evrópu.
Carrick hefur náð ágætum árangri í bráðabirgðahlutverkinu og styrkt stöðu sína sem mögulegur framtíðarstjóri, en samkeppnin um starfið er hörð.
Ratcliffe, sem hefur sífellt meiri áhrif á knattspyrnumál félagsins, mun gegna lykilhlutverki í ráðningunni.
Næstu vikur gætu því ráðið úrslitum um hvort Carrick haldi starfinu til lengri tíma.