fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Fókus

Stefnir Kylie Jenner fyrir meint einelti og mismunun af hálfu starfsmanna

Fókus
Miðvikudaginn 22. apríl 2026 14:30

Kylie jenner

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrverandi húshjálp Kylie Jenner hefur höfðað mál gegn henni og heldur húshjálpin því fram að henni hafi verið mismunað vegna trúarbragða og þjóðernis af hálfu annarra starfsmanna.

Angelica Vasquez segist hafa byrjað að vinna sem húshjálpi fyrir Kardashians-stjörnuna á heimili hennar í Beverly Hills í Kaliforníu í september 2024. Vasquez heldur því fram að viku síðar hafi hún verið flutt á heimili Jenner í Hidden Hills, þar sem hún starfaði hjá yfirhúshjálpinni Patsy og konu að nafni Elsi.

Samkvæmt dómsskjölum heldur Vasquez því fram að hún „hafi verið meðhöndluð af fjandsemi og útilokun“ á meðan á starfi hennar stóðþ

„Patsy véfengdi viðveru Vasquez, neyddi hana til að bíða með öryggisverði og gerði það ljóst að Vasquez væri ekki velkomin,“ er fullyrt í málsskjölum.

Vasquez, sem er frá El Salvador og kaþólsk, heldur því fram í málinu að henni hafi reglulega verið „úthlutað erfiðustu og óæskilegustu verkefnum; útilokuð úr ræstingateyminu; opinberlega lítilsvirt og niðurlægð fyrir framan samstarfsmenn vegna kynþáttar síns, þjóðernis og trúarbragða; og orðið fyrir hótunum og niðrandi meðferð.“

Vasquez heldur því einnigí einnig fram að stefndu hefðu „látið ítrekað í ljós mismunun og niðrandi athugasemdir“ sem „ætlað var að niðurlægja hana, hræða hana og halda völdum yfir henni.“

Vasquez segir að oft hefði verið gert grín að hreim hennar og að hún hefði verið neydd til að sinna verkefnum Patsy og Elsi. Eftir að hafa þróað með sér „einkenni sem samræmast áfallastreituröskun“ og kvíða vegna meintra fjandsamlegra vinnuaðstæðna sagði Vasquez upp störfum í ágúst 2025. Hún krefst skaðabóta fyrir ógreidd laun, tilfinningalega vanlíðan og fleira, sem og refsibætur.

Þótt engin ásökunin beinist beint að Jenner er hún skráð sem sakborningur í skjölunum þar sem hún á að hafa ekki brugðist við kvörtunum og áhyggjum Vasquez.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 6 dögum

Raðar Harry Potter myndum sínum í eftirlætisröð – Hver ætli honum finnist síst?

Raðar Harry Potter myndum sínum í eftirlætisröð – Hver ætli honum finnist síst?
Fókus
Fyrir 1 viku

Ari Edwald setur þakíbúðina á sölu

Ari Edwald setur þakíbúðina á sölu
Fókus
Fyrir 1 viku

Hver bjargar jólunum í Borgarleikhúsinu?

Hver bjargar jólunum í Borgarleikhúsinu?
Fókus
Fyrir 1 viku

Hafdís Björg opnar sig upp á gátt: „Ég var hræddari við kommentakerfið en ofbeldismanneskjuna“

Hafdís Björg opnar sig upp á gátt: „Ég var hræddari við kommentakerfið en ofbeldismanneskjuna“