

Bernardo Silva er á förum frá Manchester City í sumar og eru tvö stórlið sögð fylgjast grannt með stöðu hans.
Samkvæmt fréttum koma bæði Arsenal og Barcelona til greina sem næstu áfangastaðir fyrir hinn 31 árs gamla miðjumann.
Silva hefur verið lykilmaður hjá City undanfarin ár og átt stóran þátt í velgengni liðsins, en samningurinn hans við City er að renna út og fer hann frítt.
Hvorki Arsenal né Barcelona hafa staðfest áhuga opinberlega, en talið er að bæði félögin vilji fá hann frítt í sumar.