

Arsenal-stuðningsmenn eru ósáttir við sigurmark Erling Haaland í 2-1 sigri Manchester City um helgina.
Haaland skoraði sigurmarkið á 75. mínútu í leiknum á Etihad og tryggði City þrjú dýrmæt stig í titilbaráttunni. Markið hefur þó verið umdeilt eftir að myndskeið fóru í dreifingu á netinu.
Erling Haaland tugging Gabriel Magalhaes’ shirt before scoring the winner yesterday. ❌🧐
Should the goal have stood, Gooners? 🤔 pic.twitter.com/6Xp3O5islp
— DailyAFC (@DailyAFC) April 20, 2026
Í aðdraganda marksins var Haaland í baráttu við Gabriel Magalhães og telja margir stuðningsmenn Arsenal að Norðmaðurinn hafi brotið á varnarmanninum.
Þeir benda á að Haaland hafi togað í handlegg Gabriels og þannig skapað sér pláss til að ná til boltans og skora eftir sendingu frá Nico O’Reilly.
Dómarinn lét markið standa en umræðan um atvikið hefur verið lífleg meðal stuðningsmanna.