
Manchester City og Arsenal mætast í dag í gríðarlega mikilvægum leik í titilbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Tölfræði sem spekingurinn Jamie Carragher kastaði fram vekur athygli í aðdraganda leiksins.
Carragher bendir á að undir stjórn Mikel Arteta hafi Arsenal tapað 12 leikjum í apríl, fleiri en í nokkrum öðrum mánuði. Að hans mati bendir það til þess að liðið eigi það til að gefa eftir þegar mest á reynir, en Skytturnar hafa verið í öðru sæti síðustu þrjú tímabil.
Á sama tíma hefur lið Pep Guardiola verið afar sterkt á þessum árstíma, en City hefur unnið tæplega 80 prósent leikja sinna í apríl undir hans stjórn.
Arsenal er með sex stiga forskot í deildinni en City á leik til góða. Það setur því toppbaráttuna í háaloft ef City vinnur í dag. Sigur Arsenal fer langleiðina með að sigla titlinum í hús.