fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Þór og Víkingur sektuð um væna summu af KSÍ – „Enginn gerði athugasemd við að þeir væru með blys með sér“

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 16. apríl 2026 14:53

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á fundi aga- og úrskurðarnefndar þann 14. apríl voru kveðnir upp tveir úrskurðir vegna notkunar blysa á áhorfendasvæðum í Bestu deild karla.

Víkingur fékk sekt að fjárhæð kr. 150.000,- fyrir tvö blys stuðningsmanna í leik gegn Breiðablik. Þór fékk sekt að fjárhæð kr. 250.000,- fyrir fjögur blys stuðningsmanna í leik gegn Val.

Í dómnum gegn Þór segir:
Þór var veittur kostur á að skila athugasemdum við skýrslu eftirlitsmanns og þann 14. apríl bárust svör frá félaginu þar sem eftirfarandi kom fram:

„Við þökkum ábendinguna vegna stuðningsmanna okkar á leik Vals gegn Þór þann 12.apríl 2026. Við sáum ekki um skipulagningu og var ekki kunnugt um hvaða áhöld okkar stuðningsmenn myndu notast við til að styðja okkar lið í umræddum leik. Við sjáum ekki um gæslu á útileikjum okkar og getum við því ekki svarað fyrir hvers vegna gæslumenn á vellinum ræddu ekki við okkar stuðningsmannahóp. Við höfum nú, í kjölfar skýrslunnar sem þið senduð okkur, rætt við stuðningsmannahópinn og samkvæmt því samtali var enginn, hvorki vallarstarfsmenn né gæslumenn, sem komu að máli við stuðningsmannahóp okkar og gerðu athugasemd við að þeir væru með blys með sér.

Einnig getum við ekki fundið í reglugerðum KSÍ neinar leiðbeiningar eða reglur um hvað stuðningsmannahópar mega bera með sér í stúku og hvað má ekki. Því óskum við einnig eftir því að fá það á hreint frá ykkur og í kjölfarið munum við ræða við okkar hóp. Við höfum þegar rætt við hópinn um að þetta verði ekki endurtekið. Þá er rétt að taka fram, í ljósi þess að í skýrslunni er vísað til gr. 13.9 d-lið að í stuðningsmannahópi Þórs á umræddum leik var enginn af forystumönnum knattspyrnudeildar Þórs.“

Í dómi Víkings segir:
Víkingi R. var veittur kostur á að skila athugasemdum við skýrslu eftirlitsmanns og þann 14. apríl bárust svör frá félaginu þar sem eftirfarandi kom fram:

„Knattspyrnudeild Víkings hefur móttekið erindi KSÍ dags. 13. apríl sl. vegna leiks Víkings og Breiðablik í Bestu deild karla. Eins og segir í skýrslu eftirlitsmanns leiksins þá notuðu stuðningsfólk Víkings reykblys fyrir upphafsflaut og eftir jöfnunarmark Víkings á 71. mínútu leiksins. Þetta var ekki gert í samráði við forsvarsfólk félagsins né með samþyki félagsins. Eins og segir réttilega í skýrslunni var um að ræða reykblys, en þau eru talin skaðlaus og framkalla einungis reyk en ekki eld. Blysin eru t.d. notuð í kvikmyndagerð og í leikhúsum. Þannig var ekki um að ræða eldblys eða neyðarblys eins og hafa sést áður á leikjum hér á landi og sektað hefur verið fyrir. Reykblys hafa verið notuð vísvegar um Evrópu á knattspyrnuleikjum og teljast þau ekki vera hættuleg fólki eða öðrum váhorfendum. Þess vegna hefur notkun þeirra almennt verið samþykkt við slíkar aðstæður. Aga- og úrskurðarnenfnd KSÍ hefur áður sektað fyrir notkun eldblysa með vísan til D liðar greinar 13.9 í reglugerð um aga- og úrskurðarmál á þeim grundvelli að um hættulega framkomu sé að ræða, en slíkt á ekki við um umrædd reykblys þar sem hætta stafar ekki af þeim.„

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Í gær

Chelsea fær ansi góðar fréttir

Chelsea fær ansi góðar fréttir
433Sport
Í gær

Bournemouth búið að finna arftaka Iraola

Bournemouth búið að finna arftaka Iraola
433Sport
Í gær

Staðfestir að Saka verði ekki með gegn City – Fleiri leikmenn í óvissu

Staðfestir að Saka verði ekki með gegn City – Fleiri leikmenn í óvissu
433Sport
Í gær

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði
433Sport
Í gær

Ummæli sjúkraþjálfara ekki það sem stuðningsmenn Liverpool vildu heyra

Ummæli sjúkraþjálfara ekki það sem stuðningsmenn Liverpool vildu heyra