fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Manchester City staðfestir tíðindin

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 16. apríl 2026 16:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bernardo Silva mun yfirgefa Manchester City þegar samningur hans rennur út í lok tímabilsins. Fréttirnar hafa legið í loftinu en félagið nú staðfest þær.

Portúgalski miðjumaðurinn, 31 árs, hefur verið einn af lykilmönnum City frá því hann kom frá Monaco árið 2017. Á þeim tíma hefur hann skorað 76 mörk og lagt upp 77 í 451 leik.

Silva hefur unnið fjölda titla með félaginu, þar á meðal Meistaradeildina sem hluta af þrennunni 2022–23 og fjóra Englandsmeistaratitla í röð á árunum 2021–2024.

Hann var gerður að fyrirliða eftir brotthvarf Kevin De Bruyne síðasta sumar og hefur verið einn traustasti leikmaður Pep Guardiola í gegnum árin.

Í kveðju til stuðningsmanna segist Silva yfirgefa félagið sem stuðningsmaður fyrir lífstíð og þakkaði hann fyrir allar góðu stundirnar undanfarin áratug eða svo.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Í gær

Chelsea fær ansi góðar fréttir

Chelsea fær ansi góðar fréttir
433Sport
Í gær

Bournemouth búið að finna arftaka Iraola

Bournemouth búið að finna arftaka Iraola
433Sport
Í gær

Staðfestir að Saka verði ekki með gegn City – Fleiri leikmenn í óvissu

Staðfestir að Saka verði ekki með gegn City – Fleiri leikmenn í óvissu
433Sport
Í gær

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði
433Sport
Í gær

Ummæli sjúkraþjálfara ekki það sem stuðningsmenn Liverpool vildu heyra

Ummæli sjúkraþjálfara ekki það sem stuðningsmenn Liverpool vildu heyra