
KR hefur kallað markvörðinn Sigurpál Sören Ingólfsson til baka úr láni frá Ægi. Fótbolti.net vekur athygli á þessu.
Kemur þetta í kjölfar þess að Arnar Freyr Ólafsson sleit sin í hné í fyrsta leik Bestu deildarinnar og verður frá í um fjóra mánuði.
Halldór Snær Georgsson kom inn á í hans stað en nú er KR einnig með Sigurpál til taks fyrir leikinn gegn Þór á morgun í 2. umferð deildarinnar.
Sigurpáll er 23 ára gamall og uppalinn hjá KR, en hann hefur einnig leikið á láni með venslaliðinu KV undanfarin ár.