fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Eyjan

Snorra nóg boðið – „Skólabókasafnið var allt þakið flennistórum regnbogafánum“

Eyjan
Fimmtudaginn 16. apríl 2026 12:17

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Snorri Másson þingmaður og varaformaður Miðflokksins er ósáttur við að grunnskólar landsins flaggi regnbogafánanum og segir þar um brot á pólitísku hlutleysi skólanna að ræða.

Regnbogafáninn er eins og flestir vita alþjóðlegt tákn hinsegin fólks. Snorri segir í nýjum pistli á Facebook að hann hafi átt orðastað á Alþingi í gær við Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra um þá staðreynd að fánanum sé flaggað í grunnskólum. Vildi hann meina að það væri umdeilt að flagga fánanum við grunnskóla og við leikskóla. Segist hann hafa á þinginu rifjað upp heimsókn í kjördæmaviku á síðasta ári í nýlegan grunnskóla í Reykjavík en hann sjálfur og Inga hafi bæði farið með í heimsóknina:

„Þar vakti það athygli mína að nánast hver einasti starfsmaður skólans gekk um með hálsband í fánalitunum, skólabókasafnið var allt þakið flennistórum regnbogafánum, auglýst var hinsegin-félagsmiðstöð fyrir allt frá 5. bekk og félagsmiðstöðin alsett sambærilegum skreytingum.“

Vill Snorri meina að um hugmyndafræðilegar áherslur sé að ræða en virðist ekki líta svo á að málið snúist um að tryggja réttindi hinsegin fólks og að það sé álitið fullgildir meðlimir samfélagsins:

„Er ekki eitthvað bogið við hugmyndafræðilegar áherslur í skólakerfinu þegar slíkir fánar, sem minna sífellt meira á einhvers konar veraldleg trúartákn, eru ekki óvíða meira áberandi en sjálfur íslenski þjóðfáninn?“

Hlutleysi

Segir Snorri að skólar eigi að vera hlutlausir í þessum efnum en virðist ekki álíta að þeir eigi að gegna nokkru hlutverki við að standa vörð um mannréttindi minnihlutahópa eins og hinsegin fólks:

„Vissulega geta fánarnir þjónað því hlutverki að styrkja tilfinningu skólastjórnenda eða annarra starfsmanna fyrir eigin botnlausu manngæsku, enda yfirlýstur tilgangur þeirra auðvitað að þeir séu sérstök tákn umburðarlyndis, en fyrir mörgum foreldrum fela þeir mun frekar í sér óþægilegt brot á pólitísku hlutleysi skólanna. Fæstir þora þó að gera athugasemdir við málið og það er hin þekkta þversögn umburðarlyndisins. Það er allt annað en umburðarlyndi sem mætir þeim sem voga sér að lýsa efasemdum um fánana, að ekki sé talað um margvíslegan annan fræðsluáróður í skólunum eða umfangsmikla fræðslusamninga við Samtökin 78, á meðan kristinni kirkju og íþróttafélögum er úthýst úr skólunum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Sérstakt eða almennt vanhæfi Landskjörstjórnar

Þorsteinn Pálsson skrifar: Sérstakt eða almennt vanhæfi Landskjörstjórnar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Allir viti um hvað verði spurt í þjóðaratkvæðagreiðslunni

Allir viti um hvað verði spurt í þjóðaratkvæðagreiðslunni
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Markvisst unnið að því að afvegaleiða umræðuna

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Markvisst unnið að því að afvegaleiða umræðuna
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Systurflokkur Miðflokksins tapar stórt – bandamanni Trumps og Pútins hafnað og fleygt á dyr

Orðið á götunni: Systurflokkur Miðflokksins tapar stórt – bandamanni Trumps og Pútins hafnað og fleygt á dyr
Eyjan
Fyrir 1 viku

Landskjörstjórn hlýtur að segja af sér – stigin inn á hið pólitíska svið

Landskjörstjórn hlýtur að segja af sér – stigin inn á hið pólitíska svið
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Ekki lengur hægt að þagga niður í konum

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Ekki lengur hægt að þagga niður í konum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Engin dýrtíð á Vopnafirði – allt skrifað

Þorsteinn Pálsson skrifar: Engin dýrtíð á Vopnafirði – allt skrifað
Eyjan
Fyrir 1 viku

Fyrrum þingmaður segir engan mun á Sjálfstæðisflokknum og Miðflokknum – „Þetta er hættuleg þróun sem ungir karlmenn falla fyrir um allt land“

Fyrrum þingmaður segir engan mun á Sjálfstæðisflokknum og Miðflokknum – „Þetta er hættuleg þróun sem ungir karlmenn falla fyrir um allt land“