
Liverpool gæti hreinsað vel til í leikmannahópi sínum í sumar, en hugsanlegt er að allt að níu leikmenn fari.
Staðfest er að Mohamed Salah og Andy Robertson yfirgefa félagið, en fleiri gætu fylgt í kjölfarið samkvæmt breska miðlinum Telegraph.
Samkvæmt fréttum eru reyndari leikmenn eins og Federico Chiesa, Alexis Mac Allister, Curtis Jones og Joe Gomez meðal þeirra sem gætu verið seldir.
Þá gætu leikmenn sem hafa lítið spilað, eins og Harvey Elliott, Rhys Williams og Calvin Ramsay einnig hvatt í sumar.
Tímabil Liverpool hefur verið mikil vonbrigði og líklegt er að Arne Slot knattspyrnustjóri kveðji einnig í sumar. Uppstokkun á leikmannahópnum gæti haldist í hendur við það.