
Harry Maguire, miðvörður Manchester United, hlaut í gær aukaleik í bann eftir framkomu sína þegar hann var rekinn af velli gegn Bournemouth á dögunum.
Maguire var í banni í síðasta leik, tapinu gegn Leeds, en fær heldur ekki að spila gegn Chelsea. United verður því án hans og Lisandro Martinez, sem fékk rautt spjald gegn Leeds.
Maguire urðaði yfir fjórða dómara í leiknum gegn Bournemouth og nú er komið í ljós hvað hann sagði.
„Þú ert brandari. Þið það fokking allir,“ sagði Englendingurinn, en þetta kemur fram í skýrslu dómara.
Maguire þarf einnig að greiða 30 þúsund punda sekt.