
Anthony Gordon gæti verið á förum frá Newcastle og er hann orðaður við nokkur stórlið.
Mikil áhugi er á kappanum og er talað um Arsenal, Bayern Munchen, Liverpool og fleiri lið í samhengi við framtíð hans.
Gordon er algjör lykilmaður hjá Newcastle og verður hann allt annað en ódýr ef hann fer. Talað er um að það myndi kosta um 80 milljónir punda að kaupa hann.
Telegraph vekur athygli á því að Liverpool gæti haft forskot í baráttunni um Gordon, en fjölskylda hans styður félagið.
Mohamed Salah er á förum frá Liverpool í sumar og gæti þannig myndast pláss fyrir Gordon.