fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Stjarna Arsenal fékk stórfurðulega spurningu eftir að liðið komst áfram í gær – Myndband

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 16. apríl 2026 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Declan Rice þurfti að svara furðulegri spurningu í viðtali eftir að Arsenal tryggði sér sæti í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í gær.

Arsenal fór áfram eftir markalaust jafntefli á Emirates-leikvanginum gegn Sporting, sem dugði eftir 0-1 sigur í fyrri leiknum.

„Hversu pirrandi var þetta kvöld?“ spurði fréttakona TNT Rice hins vegar eftir leik.

„Pirrandi? Nei, við erum komnir í undanúrslit. Það skiptir engu máli hvað aðrir segja,“ svaraði Rice, en leikstíll Arsenal undanfarið hefur ekki hrifið marga.

„Það verður líka að taka inn í myndina að lið leggjast yfirleitt í fimm manna vörn á móti okkur.“

Arsenal er þó komið í undnaúrslit annað árið í röð og er með sex stiga forskot á Manchester City í deildinni heima fyrir. Síðustu vikur hafa þó verið erfiðar fyrir liðið og mætast Arsenal og City innbyrðis um helgina, auk þess sem síðarnefnda liðið á leik til góða.

„Þetta er Arsenal, það verður alltaf hávaði í kringum liðið. Við höldum bara áfram. Komið með þessar síðustu vikur tímabilsins,“ sagði Rice hins vegar brattur.

Viðtalið í heild og spurninguna furðulegu má sjá hér ofar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Í gær

Chelsea fær ansi góðar fréttir

Chelsea fær ansi góðar fréttir
433Sport
Í gær

Bournemouth búið að finna arftaka Iraola

Bournemouth búið að finna arftaka Iraola
433Sport
Í gær

Staðfestir að Saka verði ekki með gegn City – Fleiri leikmenn í óvissu

Staðfestir að Saka verði ekki með gegn City – Fleiri leikmenn í óvissu
433Sport
Í gær

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði
433Sport
Í gær

Ummæli sjúkraþjálfara ekki það sem stuðningsmenn Liverpool vildu heyra

Ummæli sjúkraþjálfara ekki það sem stuðningsmenn Liverpool vildu heyra