fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Ummæli Óskars á dögunum vekja mikla athygli í ljósi þess sem gerðist í síðustu viku – „Ég átta mig á því“

433
Miðvikudaginn 15. apríl 2026 08:30

Mynd: DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Upplegg Ólafs Inga Skúlasonar og Breiðabliks gekk vel upp gegn Íslandsmeisturum Víkings í opnunarleik Bestu deildarinnar síðastliðinn föstudag.

Blikar mættu til leiks í þriggja hafsenta kerfi og áttu Íslandsmeistararnir fá svör. Þurfti mistök frá Antoni Ara Einarssyni í markinu til að Víkingur gæti jafnað í 1-1, en þannig lauk leiknum.

Þetta var til umræðu í hlaðvarpinu Dr. Football í samhengi við ummæli Óskars Hrafns Þorvaldssonar, þjálfara KR, í útvarpsþættinum Fótbolti.net á dögunum. Í upprifjun á 0-7 tapi hans manna gegn Víkingi í fyrra sagði Óskar:

„Ég átta mig á því að auðveldasta leiðin til að ná úrslitum á móti Víkingi er að falla niður í 5-4-1 og hleypa leiknum upp í einhvers konar kaos, Víkingi líður illa í kaosi. Þeim hefur gengið verr að brjóta niður fimm manna blokkir.“

Jóhann Skúli Jónsson, sem stýrði Dr. Football þennan þáttinn, birti klippuna. „Það er eins og Ólafur Ingi hafi bara hlustað á þetta,“ sagði Jóhann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Chelsea fær ansi góðar fréttir

Chelsea fær ansi góðar fréttir
433Sport
Fyrir 2 dögum

Framtíð Rashford í lausu lofti

Framtíð Rashford í lausu lofti