fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Fulltrúar Liverpool og United voru á staðnum og urðu hrifnir

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 15. apríl 2026 07:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fulltrúar Liverpool og Manchester United fylgdust með leik RB Leipzig og Borussia Mönchengladbach í vikunni, nánar til tekið vinstri bakverðinum David Raum.

Þýski landsliðsmaðurinn átti stórleik í 1-0 sigri Leipzig og sannfærði fulltrúa félaganna um að hann væri tilbúinn fyrir ensku úrvalsdeildina samkvæmt vefmiðlinum Teamtalk.

Raum, sem er 27 ára, er lykilmaður hjá Leipzig og er öflugur sóknar- og varnarlega. Hann er með þrjú mörk og sex stoðsendingar í deildinni.

Hjá Liverpool er verið að leita arftaka fyrir Andy Robertson, sem gæti verið á förum í sumar, á meðan United vill auka samkeppni við Luke Shaw, sem hefur glímt mikið við meiðsli eins og flestir vita.

Samningur Raum rennur út árið 2027, sem þýðir að Leipzig gæti neyðst til að selja hann í sumar frekar en að missa hann frítt ári síðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Chelsea fær ansi góðar fréttir

Chelsea fær ansi góðar fréttir
433Sport
Fyrir 2 dögum

Framtíð Rashford í lausu lofti

Framtíð Rashford í lausu lofti