fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fókus

Leikkona sakar Katy Perry um kynferðisbrot – „Nuddaði viðbjóðslegu píkunni sinni á andlitið á mér“

Fókus
Þriðjudaginn 14. apríl 2026 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er aldrei skortur á drama í Hollywood, en það gerist þó ekki á hverjum degi að leikkona saki söngkonu um kynferðisbrot. Það gerði leikkonan Ruby Rose þó á dögunum, en hún segir að söngkonan Katy Perry hafi brotið gegn sér kynferðislega á skemmtistað í Ástralíu fyrir rúmum áratug.

Ruby Rose var að tjá sig um færslu frá söngkonunni sem hæddist að tónlistarmanninum Justin Bieber. Rose skrifaði um færsluna: „Katy Perry braut kynferðislega gegn mér á skemmtistaðnum Spice Market í Melbourne. Hverjum er ekki drullusama um hvað henni finnst?“

Rose hélt svo áfram: „Perry kyssti mig ekki. Hún sá að ég var að hvíla mig í fangi bestu vinkonu minnar til að forðast hana [Perry] og hún beygði sig niður, togaði nærbuxurnar sínar til hliðar og nuddaði viðbjóðslegu píkunni sinni á andlitið á mér þar til ég rauk upp og gusaði ælunni yfir hana.“

Leikkonan hélt því jafnframt fram að hún ætti myndir frá þessu kvöldi máli sínu til stuðnings og eins hafi fjöldi fólks orðið vitni að brotinu. Hún hefur eins gefið til kynna að hún ætli að leita til lögreglunnar. Samkvæmt áströlskum miðlum sáust Rose og Perry saman á djamminu á næturklúbbnum í ágúst árið 2010.

Rose segist ekki hafa stigið fram fyrr þar sem Perry hafi hjálpað henni að fá atvinnuleyfi í Bandaríkjunum. Því hafi hún haldið þessu leyndu.

„Ég var bara rétt skriðin á þrítugsaldur, en nú er ég fertug. Það hefur tekið mig tæpa tvo áratugi að stíga fram. Eins þakklát og ég er fyrir að hafa náð að lifa nógu lengi til að finna röddina mína þá sýnir þetta mál hversu mikil áhrif áföll og kynferðisbrot hafa á mann. Takk fyrir að sjá mig.“

Katy Perry þvertekur fyrir þessar ásakanir en talsmaður hennar segir í yfirlýsingu að hér sé ekki bara um falskar ásakanir að ræða heldur hættulegar og óábyrgar lygar. Perry sé nú að bætast í hóp fjölda einstaklinga sem Rose hafi ranglega sakað um brot gegn sér.

Rolling Stone greinir frá.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Nær helmingur fólks hefur hugsað um einhvern annan í kynlífi

Nær helmingur fólks hefur hugsað um einhvern annan í kynlífi
Fókus
Fyrir 4 dögum

8 skotheld ráð Ragnhildar til að bæta svefninn – „Því minna sem þú sefur, því fyrr deyrðu“

8 skotheld ráð Ragnhildar til að bæta svefninn – „Því minna sem þú sefur, því fyrr deyrðu“
Fókus
Fyrir 5 dögum

„Þú veist aldrei hvenær þú þarft að vera hugrökk“

„Þú veist aldrei hvenær þú þarft að vera hugrökk“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Rúrik hefur látið 5,5 milljóna verðlaunafé renna til SOS – Framburður á firði og Vatnajökli skiluðu sigri í síðustu keppni

Rúrik hefur látið 5,5 milljóna verðlaunafé renna til SOS – Framburður á firði og Vatnajökli skiluðu sigri í síðustu keppni
Fókus
Fyrir 6 dögum

Þriðja dóttirin fædd

Þriðja dóttirin fædd
Fókus
Fyrir 6 dögum

Raunveruleikastjarnan látin aðeins þrítug að aldri

Raunveruleikastjarnan látin aðeins þrítug að aldri