
Íslenska kvennalandsliðið leikur gegn Úkraínu í afar mikilvægum leik í undankeppni HM annað kvöld.
Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli og þarf Ísland að sækja þrjú stig í baráttunni um þriðja sæti undanriðilsins, en það hefur mikið að segja um framhaldið í umspili um sæti á HM. Þangað hefur Ísland aldrei komist áður.
„Þær hafa ákveðna hugmyndafræði sem þær spila eftir. Þær eru mjög beinskeittar, spila mikið upp kantana, boltar á milli hafsenta og bakvarða. Kantmennirnir þeirra eru góðar,“ sagði Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari um úkraínka liðið á blaðamannafundi í dag.
„Svo er styrkleikinn þeirra líka að þær hafa skorað mikið úr föstum leikatriðum og refsað liðum þar,“ bætti hann við.
Leikurinn hefst klukkan 18:30 annað kvöld. Ísland mætir svo Evrópumeisturum Englands, einnig hér á landi, á laugardag og ljóst er að það verður allt öðruvísi verkefni.