fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Sérfræðingur í líkamstjáningu telur að Arteta óttist það að vera rekinn

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 14. apríl 2026 09:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikel Arteta er sagður undir mikilli pressu eftir tap Arsenal gegn Bournemouth um helgina.

Arsenal hefur nú tapað þremur af síðustu fjórum leikjum sínum og hefur einnig dottið út úr báðum bikarkeppnum. Á sama tíma hefur Manchester City minnkað forskot Arsenal í toppbaráttunni niður í sex stig, með leik til góða.

Sérfræðingur í líkamstjáningu, Darren Stanton, telur að Arteta hafi sýnt merki um mikla reiði og áhyggjur eftir leikinn. Samkvæmt honum reyndi Spánverjinn að halda aftur af sér í viðtölum, en ýmis merki bentu til innri spennu.

„Við sáum skýr merki um reiði. Hann var mjög ósáttur við frammistöðuna og stöðu liðsins undanfarið,“ sagði Stanton. Hann benti á aukinn blikkhraða, þéttan svip og líkamstjáningu sem gefi til kynna streitu og kvíða.

Stanton telur að Arteta geri sér grein fyrir alvarleika stöðunnar og að framtíð hans sé í húfi ef úrslitin lagast ekki fljótlega. Hann telji að viti að það muni kosta hann starfið.

Næsti leikur Arsenal er gegn Manchester City á Etihad og gæti haft afgerandi áhrif á titilbaráttuna. Ef Arsenal nær ekki úrslitum þar gæti forskotið horfið og pressan aukist enn frekar.

Arteta stendur því frammi fyrir lykilvikum á lokaspretti tímabilsins þar sem bæði titilvonir og starf hans eru undir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Chelsea fær ansi góðar fréttir

Chelsea fær ansi góðar fréttir
433Sport
Fyrir 2 dögum

Framtíð Rashford í lausu lofti

Framtíð Rashford í lausu lofti