

Unai Emery, stjóri Aston Villa, segir að Morgan Rogers sé enn fullkomlega einbeittur þrátt fyrir mikinn orðróm um framtíð hans.
Rogers hefur verið orðaður við stór félög að undanförnu eftir frábæra frammistöðu síðustu tvö ár. Form hans hefur þó dalað lítillega undanfarið, sem hefur vakið áhyggjur um mögulegt álag.
Emery segir þó að leikmaðurinn sé áfram með hugann við verkefnið. „Hann er einbeittur og er hér með okkur. Hann hefur verið stöðugur í tvö ár og veit hvað þarf til að halda áfram að bæta sig,“ sagði spænski þjálfarinn.
Hann hrósaði einnig fjölhæfni Rogers og mikilvægi hans fyrir liðið. „Hann getur spilað í mismunandi stöðum og er lykilmaður í okkar sóknarleik,“ bætti Emery við.
Þrátt fyrir sveiflur í formi segir Emery að framlag hans sé alltaf mikilvægt. „Hann er að eiga frábært tímabil og við treystum honum fullkomlega,“ sagði hann.
Rogers virðist því halda fókus þrátt fyrir mikinn áhuga annarra félaga.