fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Til í að taka Tiger Woods í meðferð

Hörður Snævar Jónsson
Sunnudaginn 12. apríl 2026 13:30

Vanessa Trump og Tiger Woods. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tony Adams hefur boðist til að hjálpa golfstjörnunni Tiger Woods eftir að hann dró sig í hlé til að einbeita sér að heilsu sinni.

Woods, sem er 50 ára, lenti í bílslysi á dögunum og samkvæmt fréttum fundust lyf ávísuð af lækni hjá honum á vettvangi. Hann hefur neitað að hafa verið undir áhrifum en staðfest að hann ætli að taka sér frí frá golfi.

Adams, sem hefur sjálfur glímt við fíknivanda en verið edrú í 30 ár, segist tilbúinn að rétta fram hjálparhönd. Hann stofnaði samtökin Sporting Chance fyrir rúmum tveimur áratugum, sem aðstoða íþróttafólk við að takast á við fíkn.

„Ég sé einstakling sem glímir við fíkn, ef ég á að vera hreinskilinn. Ef hann vill koma í meðferð, þá er pláss fyrir hann,“ sagði Adams.

Woods hafði ætlað að taka þátt í Masters-mótinu en hætti við þátttöku.

Málið hefur vakið mikla athygli og Adams vonast til að Woods fái þann stuðning sem hann þarf.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Chelsea fær ansi góðar fréttir

Chelsea fær ansi góðar fréttir
433Sport
Fyrir 2 dögum

Framtíð Rashford í lausu lofti

Framtíð Rashford í lausu lofti