fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Nýtt heimili Harry Kane og fjölskyldu vekur mikla athygli

Hörður Snævar Jónsson
Sunnudaginn 12. apríl 2026 11:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Harry Kane er að ljúka við byggingu á glæsilegu húsi sínu í Surrey sem hefur vakið athygli fyrir að minna á Buckingham Palace að sögn heimamanna.

Húsið, sem er metið á um 20 milljónir punda, er hannað í georgískum stíl með stórum gluggum og súlum við innganginn sem minna á konungshöllina í London.

Þrátt fyrir klassískt útlit er húsið búið nútímalegum lausnum. Þar má nefna sérstakan snúningspall fyrir bíla sem kostar um 20 þúsund pund og auðveldar að aka út úr bílakjallaranum.

Í kjallaranum er pláss fyrir allt að fimm bíla og er ljóst að Kane hefur lagt mikla áherslu á þægindi og öryggi.

Kane og eiginkona hans, Kate, virðast því hafa fjárfest í einu glæsilegasta heimili ensks knattspyrnumanns.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Chelsea fær ansi góðar fréttir

Chelsea fær ansi góðar fréttir
433Sport
Fyrir 2 dögum

Framtíð Rashford í lausu lofti

Framtíð Rashford í lausu lofti