fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Grennist í fangelsi og byrjaður að spila fótbolta þar

Hörður Snævar Jónsson
Sunnudaginn 12. apríl 2026 09:54

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Joey Barton hefur lést um nokkur kíló og gengið til liðs við fótboltalið fangelsisins á meðan hann bíður réttarhalda, samkvæmt samstarfsmanni hans í hlaðvarpi.

Barton hefur verið í gæsluvarðhaldi frá 10. mars eftir að hafa verið ákærður fyrir líkamsárás sem olli alvarlegum meiðslum. Hann er sakaður um að hafa ráðist á Kevin Lynch, 51 árs tveggja barna föður, á golfvelli í Huyton og Prescot þann 8. mars.

Samkvæmt upplýsingum úr dómsal hlaut Lynch áverka á andliti og gæti misst sjón á öðru auga.

Barton neitaði sök þegar hann kom fyrir dóm í Liverpool Crown Court í gegnum fjarfund.

Í nýlegum þætti af hlaðvarpi hans, þar sem hann var fjarverandi, ræddu meðstjórnendur hans stöðu hans og sögðu hann taka þátt í daglegu lífi innan fangelsisins, þar á meðal með því að spila fótbolta.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Chelsea fær ansi góðar fréttir

Chelsea fær ansi góðar fréttir
433Sport
Fyrir 2 dögum

Framtíð Rashford í lausu lofti

Framtíð Rashford í lausu lofti