

Landsmenn eru gjarnan varir við sig þegar apríl rennur í garð enda er það ævaforn hefð að reyna að fá fólk til að hlaupa fyrsta apríl. Dagurinn þykir ekki góður fyrir veislur og viðburði enda hætt við að fólk láti ekki sjá sig af ótta við að um gabb sé að ræða. Aprílgöbbin voru fjölmörg í dag eins og sjá má á meðfylgjandi samantekt, sem er þó langt frá því að vera tæmandi.
Alþingi birti myndband þar sem þingmaður Flokks fólksins, Sigurður Helgi Pálmason, tilkynnti að klukkan 15 yrði hornsteinn fjarlægður úr þinghúsinu. Á bak við hann væri tímahylki frá árinu 1881 þar sem meðal annars mætti finna mynt frá því ári sem og skjöl.
Sælgætisgerðin Nói Síríus tilkynnti að fyrir mistök hefðu gervigreindarmálshættir farið inn í nokkur Trítlaegg. Nú þegar hafi fyrirtækið fengið ábendingar frá viðskiptavinum sem hefðu tekið forskot á páskasæluna en enn væru þó nokkur egg í dreifingu með ChatGPT-málsháttum.
Víkingasafnið Eiríksstaðir tilkynnti nýja og spennandi þjónustu safnsins, víkingajóga, sem var sagt byggja á fornum handritum sem nýlega hafi fundist í kirkjuturninum í Skálholti. Áhugasömum var bent á að bóka sér tíma í gegnum vefsíðu safnsins.
Miðillinn Austurfrétt birti frétt um að íbúar Stöðvarfjarðar hefðu ekki vitað hvaðan á þá stóð veðrið í gær þegar listaverk eftir dularfulla vegglistamanninn Bansky birtist á vegg gamla kaupfélagshússins. Byggðastofnun hefði þegar samið við málningarverktaka sem ætluðu að mála yfir verkið seinni partinn í dag en hópur listelskra Stöðfirðinga ætlaði slá skjaldborg um verkið frá klukkan 15.
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum tilkynnti um nýja viðbót við starfsemi þjóðgarðsins – drónalandvörð.
Byggðasafn Skagfirðinga sagðist sökum plássleysis neyðast til að grípa til róttækra aðgerða og gefa valda muni tengda sögu héraðsins.
Árnastofnun fagnaði nýrri prentútgáfu Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls, en í tilefni dagsins væri hægt að fá takmarkað upplag kynningareintaka gefins.
Bónus kynnti í dag nýja vöru – Bónus Loft. Íslensku lofti hefði verið komið í áldós í takmörkuðu upplagi.
Kjarnafæði tilkynnti að í samstarfi við áhrifavaldinn Patrek Jaime væri fyrirtækið nú að bjóða upp á páskalambið í sérstökum hátíðarumbúðum.
@patrekurjaimee Pepperoni protein bar er held eg æði ✨💕 hvaða vöru myndir þú gera? Getur skráð þína hugmynd á kn.is 💅🏽 #íslenskt #fyp #fyrirþig #samstarf ♬ Club Penguin Pizza Parlor – Cozy Penguin
Þjóðleikhúsið bauð aðdáendum söngleiksins Ormstungu að mæta í sérstakan spinning tíma hjá leikurunum Jakobi van Oosterhout og Kristni Óla S. Haraldssyni.
Lögreglan á Norðurlandi vestra tilkynnti að embættinu hefði borist óvenjuleg gjöf, uppstoppaður geirfugl sem yrði til sýnis á stöðvum embættisins í dag.
Morgunblaðið birti í dag umdeilt aprílgabb þar sem lesendum var bent á að mæta á skrifstofu Skattsins til að freista þess að fá kílómetragjaldið niðurfellt. Skatturinn var ekki með í ráðum og sendi í framhaldinu út tilkynningu til að koma því skýrt á framfæri að um gabb væri að ræða. Eins var gripið á það ráð að koma tilkynningu um slíkt hið sama fyrir við inngang afgreiðslu Skattsins.
Víkurfréttir létu sér ekki nægja eitt gabb heldur hentu í tvö. Annars vegar var fólki bent á að það gæti barið augum sjaldséða sæskjaldböku sem hefði fundist í fæðarmálinu við Skessuhellinn. Hins vegar voru íbúar beðnir um að vakta drykkjarvatnið á heimilum sínun en sökum viðhaldsvinnu við Svartsengi hefðu steinefni losnað sem gætu valdið því að vatnið yrði bleikt á litinn. Voru íbúar beðnir um að hafa samband við miðilinn til að gera grein fyrir litnum á vatni sínu.
Vísir birti frétt um opna hljómsveitaræfingu tónlistarmannsins Bubba Morthens í Laugardalshöll.
Handknattleiksfélag Kópavogs, HK, tilkynnti um nýtt stefnumótaforrit. „Við höfum tekið næsta skref. Ekki bara á vellinum… heldur líka í ástinni.“

Elko birti metnaðarfullt aprílgabb um að verslunin væri nú með til sölu sérstakan koffínmæli sem mælir koffínmagn í líkamanum með snjöllum hætti. Var áhugasömum bent á að taka þátt í gjafaleik. Elko lét ekki þar við liggja heldur bjó til raunverulega sölusíðu fyrir koffínmælinn sem því miður reyndist þó uppseldur.

Eins deildi Elko aprílgabbi raftækjaframleiðandans Dyson sem tilkynnti nýjustu vörulínu sína – hársnyrtitæki fyrir gæludýr.

Kannski verða margir vonsviknir að frétta að hér hafi verið um aprílgabb að ræða, en því miður er það svo. IKEA tilkynnti í dag um opnun boltalandsins Storland fyrir fullorðna.
Landbúnaðarháskóli Íslands tilkynnti að ákveðið hefði verið að flytja til landsins sex alpakkadýr til að kanna möguleika á ræktun þeirra við íslenskar aðstæður.

Útifataframleiðandinn 66°Norður tilkynnti að Reykjavíkurborg hefði leitað til fyrirtækisins vegna sprunguskemmda á dýrmætum styttum. Fyrirtækið hefði því útbúið hlýjan fatnað til að verja stytturnar fyrir veðri og vindum.
Olíufélagið N1 tilkynnti að í samstarfi við Wolt væri nú hægt að fá eldsneytið heimsent.
Bókabúðin Skálda tilkynnti um stefnubreytingu enda bækur „alveg hættar að seljast því það les enginn neitt lengur“. Boðaði bókabúðin til brunaútsölu á bókum þar sem bækur yrðu seldar á allt að 90 prósenta afslætti.
Skartgripaverslunin Dálæti kynnti nýja vörulínu. Hverjum langar ekki að skreyta eyrum með íbúfenpakkningu?
KFC boðaði nýjan rétt á matseðli sem væri aðeins fáanlegur í dag, súkkulaði fötu.
Íslendingasamfélagið á Reddit lét sig ekki vanta í aprílgleðina en stjórnendur síðunnar tilkynntu skömmu eftir miðnætti að framvegis þyrftu notendur að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum til að taka þátt í umræðum. Næstu 24 klukkustundirnar væri þó hægt að biðja um undanþágu með því að skrifa athugasemdina !optout ásamt dagsetningunn, 01.04.26. Nokkrir voru fljótir að stökkva á vagninn og biðja um undanþáguna, sumum var gróflega misboðið og hugðust hætta þátttöku í umræðun, en fljótlega varð notendum ljóst að um grín væri að ræða.