fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Fókus

Clavicular handtekinn vegna slagsmála milli kærustunnar og annarrar konu

Fókus
Mánudaginn 30. mars 2026 16:42

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hégómagjarni áhrifavaldurinn Clavicular, sem réttu nafni heitir Braden Eric Peters, var handtekinn á fimmtudaginn grunaður um líkamsárás. Frá þessu greinir Los Angeles Times en í fréttinni kemur fram að handtökuna megi rekja til atviks sem átti sér stað í febrúar þegar kærasta Clavicular, Violet Lentz, lenti í slag við aðra konu. Clavicular hélt sig fyrst til hlés og greip svo í hendur hinnar konunnar til að skilja þær að. Á meðan Clavicular hélt um hendur hinnar konunnar náði kærastan hans að láta höggin dynja.

Samkvæmt fréttum erlendra miðla er talið að Clavicular hafi hvatt til slagsmálanna, í von um að myndband af slagnum myndi vekja athygli. Hann á því yfir höfði sér ákæru fyrir minni háttar líkamsárás. Áhrifavaldurinn virðist ekkert sérstaklega stressaður yfir málinu. Þegar fjölmiðlar óskuðu eftir viðbrögðum frá honum í dag sagðist hann nývaknaður og ekkert hafa um málið að segja að svo stöddu. „Kannski næst,“ sagði áhrifavaldurinn sem er frægur fyrir svokallaða útlitsbestun (e. looksmaxxing) sem er hugmyndafræði sem gengur út á það að verða eins myndarlegur og hægt er. Clavicular hefur farið óvenjulegar leiðir til að bæta útlit sitt, svo sem með því að brjóta andlitsbein með hamri, með því að sprauta sig með peptíðum, sterum og karlhormónum og svo með því að taka inn fíkniefni.

Hann er eins til rannsóknar hjá sjávar- og villidýrastofnun Flórída út af myndbandi þar sem krókódíll kemur við sögu, en þar sést áhrifavaldurinn skjóta á krókódíla í þjóðgarði. Samkvæmt lögum í Flórída er ólöglegt að drepa, meiða, eiga eða veiða krókódíla án þess að hafa tilskilin leyfi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 1 viku

Raðar Harry Potter myndum sínum í eftirlætisröð – Hver ætli honum finnist síst?

Raðar Harry Potter myndum sínum í eftirlætisröð – Hver ætli honum finnist síst?
Fókus
Fyrir 1 viku

Ari Edwald setur þakíbúðina á sölu

Ari Edwald setur þakíbúðina á sölu