fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Fréttir

Náfrænka bæjarstjóra aftur hrakin frá störfum vegna óánægju – Fær nýja vinnu hjá bænum

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 10. mars 2026 10:47

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dagný Kristinsdóttir, náfrænka Valdimars Víðissonar bæjarstjóra Hafnarfjarðar, hefur aftur verið hrakin frá störfum sem skólastjóri vegna óánægju starfsmanna. Þetta kemur fram hjá RÚV sem hefur það eftir samskiptastjóra bæjarins að Dagný muni hverfa til annarra starfa fyrir bæinn.

Greint var frá því í nóvember að Dagný væri komin í leyfi á meðan úttekt færi fram á stjórnarháttum í skólanum. Málið kom upp í kjölfar alvarlegra ábendinga frá starfsfólki. Ráðning Dagnýjar árið 2024 var umdeild vegna tengsla hennar við Valdimar, sem þá lá fyrir að tæki við sem bæjarstjóri á kjörtímabilinu, sem og vegna starfsloka hennar í Hvassaleitisskóla árið 2022 þar sem hún sagði starfi sínu sem skólastjóri lausu í kjölfar vantraustsyfirlýsingar 22 starfsmanna skólans.

Eftir að Dagný lét af störfum hjá Hvassaleitisskóla tók hún við stöðu deildarstjóra hjá Setbergsskóla en sat þá líka í bæjarstjórn Mosfellsbæjar.

Valdimar og Dagný eru þremenningar og voru bekkjarfélagar í Grunnskóla Bolungarvíkur á sínum tíma.

Vestfirski miðillinn Bæjarins besta fjallaði um skyldleika þeirra árið 2022 þegar bæði höfðu hlotið brautargengi í sveitarstjórnarkosningunum:

„Dagný og Valdimar voru í sama bekk í Grunnskóla Bolungavíkur og eru auk þess þremenningar, afkomendur Margrétar Guðfinnsdóttur frá Litlabæ og Sigurgeirs Sigurðssonar, skipstjóra frá Markeyri í Skötufirði. Til gamans má geta þess að verðandi bæjarstjóri í Garðabæ, Almar Guðmundsson, er barnabarn Margrétar og Sigurgeirs og því náskyldur Valdimar og Dagnýju.“

Þess má til gamans geta að ritstjóri Bæjarins besta er Kristinn H. Gunnarsson, fyrrum alþingismaður og faðir Dagnýjar.

Uppfært: 13:00

Hafnarfjarðarbær hefur sent yfirlýsingu vegna fréttaflutnings þar sem áréttað er að Valdimar Víðisson bæjarstjóri kom á engan hátt nálægt ráðningu Dagnýjar á sínum tíma og átti ekki heldur aðkomu að samkomulagi um breytingu á starfi hennar.

„Valdimar Víðisson kom á engan hátt að ráðningunni að skólastjóra Víðistaðaskóla um mitt ár 2024. Bæjarstjóri kom hvorki að ákvörðuninni né ferlinu. Hann var ekki upplýstur sérstaklega um ráðninguna á sínum tíma. Hann kom heldur ekki að samkomulaginu um breytingar á starfi þessa fyrrum skólastjóra. Samkomulagið er gert í fullri sátt allra málsaðila.“

Sjá einnig:Umdeild ráðning skólastjóra í Hafnarfirði – Náfrænka verðandi bæjarstjóra hreppti hnossið

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Gróf upp látna systur sína og gekk með hana þriggja kílómetra leið

Gróf upp látna systur sína og gekk með hana þriggja kílómetra leið
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Sláandi þróun meðal íslenskra ungmenna – Ofbeldi, ójafnrétti, persónunjósnir, klám og leynilegir nektarmyndahópar

Sláandi þróun meðal íslenskra ungmenna – Ofbeldi, ójafnrétti, persónunjósnir, klám og leynilegir nektarmyndahópar
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Verðbólgan eilítið niður á við

Verðbólgan eilítið niður á við
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Reyndur ferðabloggari um Ísland – „Þetta er ódýrasta leiðin til að ferðast um Ísland án þess beinlínis að pína sig“

Reyndur ferðabloggari um Ísland – „Þetta er ódýrasta leiðin til að ferðast um Ísland án þess beinlínis að pína sig“
Fréttir
Í gær

Jón Pétur dregur í land – „Ég tel hvorki jafnrétti, menntun né frelsi kvenna vera vandamál“

Jón Pétur dregur í land – „Ég tel hvorki jafnrétti, menntun né frelsi kvenna vera vandamál“
Fréttir
Í gær

Lára ósátt við bílastæðamálin við Laugaveg 26 – „Svo eru þau að rukka allan sólarhringinn“

Lára ósátt við bílastæðamálin við Laugaveg 26 – „Svo eru þau að rukka allan sólarhringinn“