fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
Pressan

Trump segir stríðið svo gott sem búið

Pressan
Mánudaginn 9. mars 2026 20:57

Er Trump brjálaður?

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að stríðinu í Íran sé svo gott sem lokið. Þetta kemur fram í símaviðtali forsetans við CBS-fréttastofuna.

„Ég held að stríðinu sé að mestu lokið,“ sagði forsetinn sem ræddi við miðilinn frá gólfklúbbi sínum í Flórída.

„Íran hefur engan flota, engar samskiptaleiðir, engan flugher. Eldflaugum þeirra hefur fækkað verulega. Það er verið að sprengja upp drónana þeirra út um allt, þar á meðal drónaframleiðslu þeirra.“

Samkvæmt Bandaríkjaher hafa verið gerðar rúmlega 3.000 árásir á írönsk skotmörk undanfarna viku.

„Þeir eiga ekkert eftir, það er ekkert eftir í hernaðarlegum skilningi,“ sagði forsetinn.

Það var seint í gær, sunnudag, sem Íranir tilkynntu að Ayatollah Mojtaba Khamenei myndi taka við af föður sínum sem æðsti klerkur landsins. Trump segist ekkert hafa við nýja leiðtogann að segja.

„Ég hef engin skilaboð til hans. Engin, alls engin,“ sagði Trump en bætti við að hann hafi annan einstakling í huga til að leiða Íran.

Sökum stríðsins hafa vöruflutningar um Hormússund nánast stöðvast. Trump segist vera að íhuga að taka sundið yfir.

Segir hann að hernaðaraðgerðirnar í Íran gangi vonum framar og séu í raun langt á undan áætlun. Vakti það þó athygli CBS að á meðan forsetinn fullyrðir að stríðinu sé svo gott sem lokið hafi varnarmálaráðuneytið birt færslu á samfélagsmiðlum þar sem sagði: „Við erum rétt að byrja“ og „Engin miskunn“.

CBS greinir frá.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Datt ofan í kamar og sat föst í saur upp að mitti í þrjár klukkustundir

Datt ofan í kamar og sat föst í saur upp að mitti í þrjár klukkustundir
Pressan
Í gær

Sætuefni í matnum geta hugsanlega haft áhrif á afkvæmin

Sætuefni í matnum geta hugsanlega haft áhrif á afkvæmin
Pressan
Fyrir 3 dögum

Rex Heuermann hefur játað á sig átta morð – En hvað með hin líkin á Gilgo-ströndinni?

Rex Heuermann hefur játað á sig átta morð – En hvað með hin líkin á Gilgo-ströndinni?
Pressan
Fyrir 4 dögum

Umfangsmiklar aðgerðir gegn trúarsamtökum sem kenna sig við ljós og frið – Ásakanir um kynferðisbrot, nauðungarhjónaband og þrælahald

Umfangsmiklar aðgerðir gegn trúarsamtökum sem kenna sig við ljós og frið – Ásakanir um kynferðisbrot, nauðungarhjónaband og þrælahald
Pressan
Fyrir 4 dögum

Lögreglukona svipti sig lífi nokkrum mánuðum eftir að eiginmaðurinn var myrtur – ekki var þó allt sem sýndist

Lögreglukona svipti sig lífi nokkrum mánuðum eftir að eiginmaðurinn var myrtur – ekki var þó allt sem sýndist
Pressan
Fyrir 5 dögum

Leikarinn dæmdur í lífstíðarfangelsi

Leikarinn dæmdur í lífstíðarfangelsi