fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Víkingur staðfestir komu Jóa Bjarna

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 2. mars 2026 16:19

Jóhannes Kristinn Bjarnason. Mynd: Víkingur R.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jóhannes Kristinn Bjarnason er genginn í raðir Víkings frá Kolding. Þetta hefur legið í loftinu en er nú staðfest af Víkingi.

Jóhannes fór til Danmerkur frá KR í fyrra en snýr nú aftur til Íslands, í þetta sinn til Íslandsmeistaranna, sem ætla sér stóra hluti á komandi leiktíð.

Tilkynning Víkings
Knattspyrnudeild Víkings tilkynnir að Jóhannes Kristinn Bjarnason hefur samið við félagið út árið 2029.

Jóhannes hóf ferill sinn hjá KR í efstu deild karla á Íslandi þar sem hann vakti snemma athygli og sem unglingur fékk hann reynslu erlendis m.a. hjá IFK Norrköping í sænsku úrvalsdeildinni. Árið 2025 skrifaði hann undir hjá danska félaginu Kolding IF.

Jóhannes á einnig 28 leiki að baki fyrir yngri landslið Íslands og hefur skorað í þeim 2 mörk.

Gefum Kára Árnasyni yfirmanni knattspyrnumála orðið.

„Jói er drífandi leikmaður sem getur notað báðar lappir en er þó hægri fótar, heilt yfir mjög spennandi signing fyrir Víking og gríðarlega efnilegur leikmaður. Það verður gaman fyrir alla Víkinga að sjá hann í þeim svarta og rauða í sumar.“

Vertu hjartanlega velkominn í Haminguna Jói.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Í gær

Chelsea fær ansi góðar fréttir

Chelsea fær ansi góðar fréttir
433Sport
Í gær

Bournemouth búið að finna arftaka Iraola

Bournemouth búið að finna arftaka Iraola
433Sport
Í gær

Staðfestir að Saka verði ekki með gegn City – Fleiri leikmenn í óvissu

Staðfestir að Saka verði ekki með gegn City – Fleiri leikmenn í óvissu
433Sport
Í gær

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði
433Sport
Í gær

Ummæli sjúkraþjálfara ekki það sem stuðningsmenn Liverpool vildu heyra

Ummæli sjúkraþjálfara ekki það sem stuðningsmenn Liverpool vildu heyra