fbpx
Laugardagur 18.apríl 2026
433Sport

Arsenal stígur inn og leiðir kapphlaupið gegn Liverpool og United

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 27. febrúar 2026 11:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arsenal hyggst gera atlögu að enska landsliðsmanninum Anthony Gordon í sumar og vonast til að klófesta hann fyrir um 75 milljónir punda. Ensk blöð segja frá.

Topplið ensku úrvalsdeildarinnar er talið vera komið á undan bæði Liverpool og Manchester United í kapphlaupinu um leikmanninn og telur að Gordon sé opinn fyrir því að færa sig suður til London.

Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, hefur lengi haft miklar mætur á honum frá tíma hans hjá Everton.

Gordon, sem varð 25 ára í vikunni, á tvö ár eftir af samningi sínum við Newcastle. Félagið mun þó krefjast allt að 95 milljóna punda, en líklegra þykir að endanlegt verð verði á bilinu 75 til 80 milljónir.

Arsenal vill styrkja vinstri kantinn og gæti komu Gordons þýtt að Gabriel Martinelli fari á braut.

Gordon var nálægt því að ganga til liðs við Liverpool fyrir tveimur árum en sá samningur gekk ekki eftir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Í gær

Chelsea fær ansi góðar fréttir

Chelsea fær ansi góðar fréttir
433Sport
Í gær

Bournemouth búið að finna arftaka Iraola

Bournemouth búið að finna arftaka Iraola
433Sport
Í gær

Staðfestir að Saka verði ekki með gegn City – Fleiri leikmenn í óvissu

Staðfestir að Saka verði ekki með gegn City – Fleiri leikmenn í óvissu
433Sport
Í gær

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði
433Sport
Í gær

Ummæli sjúkraþjálfara ekki það sem stuðningsmenn Liverpool vildu heyra

Ummæli sjúkraþjálfara ekki það sem stuðningsmenn Liverpool vildu heyra