fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Horfa til tveggja markvarða á Englandi fyrir sumarið

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 27. febrúar 2026 08:00

Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Juventus er í leit að markmanni fyrir sumargluggann og er Alisson, markvörður Liverpool, til að mynda á blaði.

Ítalska blaðið Gazzetta dello Sport segir frá þessu, en þar kemur sömuleiðis fram að félagið fylgist með gangi mála hjá markverði Tottenham, Guglielmo Vicario.

Alisson, sem er orðinn 33 ára gamall, hefur reynst félaginu frábær þjónn síðan hann kom þangað 2018. Hann á enn um eitt og hálft ár eftir af samningi sínum á Anfield.

Juventus var auðvitað langbesta lið Ítalíu um árabil en hefur ekki náð fram sínu besta undanfarin ár. Liðið vann Ítalíumeistaratitilinn síðast árið 2020 og var þá að vinna hann níunda árið í röð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Chelsea fær ansi góðar fréttir

Chelsea fær ansi góðar fréttir
433Sport
Fyrir 2 dögum

Framtíð Rashford í lausu lofti

Framtíð Rashford í lausu lofti