

Manchester United er það lið í ensku úrvalsdeildinni sem hefur staðið sig best á árinu 2026.
Liðið lék einn deildarleik undir stjórn Ruben Amorim og einn leik undir stjórn Darren Fletcher, báðir enduðu með jafntefli.
Liðið hefur spilað sex leiki undir stjórn Michael Carrick, unnið fimm og gert eitt jafntefli.
Liðið hefur sótt átján stig á meðan Arsenal hefur sótt sextán, þá hefur topplið Arsenal leikið leik meira.
Svona er staðan á árinu 2026 í ensku úrvalsdeildinni.
