fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
Pressan

Myrti 5 mánaða stjúpson sinn í skapofsakasti – „Ég fæ aldrei að sjá hann taka fyrstu skrefin,“ segir móðirin

Pressan
Miðvikudaginn 25. febrúar 2026 21:00

Thomas Morgan. Lögreglumynd.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Thomas Morgan, 29 ára gamall maður í Swansea, Wales, hefur verið dæmdur í 19 ára fangelsi fyrir að hrista fimm mánaða dreng, Jensen-Lee Dougal, svo ofsalega að barnið hlaut bana af.

Harmleikurinn átti sér stað á heimili Morgan, þáverandi kærustu hans og drengsins, í Swansea, 30. mars árið 2024. Drengurinn hlaut heilaskemmdir, blæðingar á sjónhimnum augnanna og fjölmarga aðra áverka í árásinni.

Morgan fékk æðiskast upp úr rifrildi við móður drengsins og tók skapofsa sinn út á varnarlausu barninu.

Móðirin, hin 24 ára Jordan Dougal, sagði í yfirlýsingu sem lesin var í dómsalnum: „Ég fæ aldrei tækifærit til að heyra son sinn segja að hann elski mig og ég fæ aldrei að heyra hann kalla mig mömmu. Ég fæ aldrei að sjá hann taka fyrstu skrefin, fara í skóla eða sjá manneskjuna sem hann hefði orðið. Hann var tekinn frá mér.“

Hún segir að henni hafi misboðið mjög þegar Morgan ásamt nýju kærustunni sinni héldu nafnaveislu fyrir barnið sitt í fyrra. Hún segir: „Hann gat byggt upp framtíð sína á meðan sonur minn átti enga framtíð.“

Ljóst er þó að framtíð Morgans er í fangelsi því eins og fyrr segir hlaut hann 19 ára dóm.

Nánar má lesa um málið hér.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Datt ofan í kamar og sat föst í saur upp að mitti í þrjár klukkustundir

Datt ofan í kamar og sat föst í saur upp að mitti í þrjár klukkustundir
Pressan
Í gær

Sætuefni í matnum geta hugsanlega haft áhrif á afkvæmin

Sætuefni í matnum geta hugsanlega haft áhrif á afkvæmin
Pressan
Fyrir 3 dögum

Rex Heuermann hefur játað á sig átta morð – En hvað með hin líkin á Gilgo-ströndinni?

Rex Heuermann hefur játað á sig átta morð – En hvað með hin líkin á Gilgo-ströndinni?
Pressan
Fyrir 4 dögum

Umfangsmiklar aðgerðir gegn trúarsamtökum sem kenna sig við ljós og frið – Ásakanir um kynferðisbrot, nauðungarhjónaband og þrælahald

Umfangsmiklar aðgerðir gegn trúarsamtökum sem kenna sig við ljós og frið – Ásakanir um kynferðisbrot, nauðungarhjónaband og þrælahald
Pressan
Fyrir 4 dögum

Lögreglukona svipti sig lífi nokkrum mánuðum eftir að eiginmaðurinn var myrtur – ekki var þó allt sem sýndist

Lögreglukona svipti sig lífi nokkrum mánuðum eftir að eiginmaðurinn var myrtur – ekki var þó allt sem sýndist
Pressan
Fyrir 5 dögum

Leikarinn dæmdur í lífstíðarfangelsi

Leikarinn dæmdur í lífstíðarfangelsi