
Karlmaður á fertugsaldri, ásamt samverkamanni, í Halmstad í Svíþjóð er nú fyrir dómi vegna ákæru fyrir að nauðga fjórum stúlkum undir lögaldri. Maðurinn tældi stúlkurnar með því að þykjast, í samskiptum við þær á samfélagsmiðlum, vera á unglingsaldri og gaf þeim síðan áfengi og eiturlyf til að eiga auðveldara með að brjóta á þeim. Ein stúlkan og móðir hennar segja frá hryllilegri reynslu sinni en stúlkan sendi móðurinni skilaboð með beiðni um hjálp rétt áður en maðurinn braut á henni. Móðirin vissi hins vegar ekki hvar dóttir sín var og lýsir örvæntingarfullri leit með hjálp lögreglu.
Sænska ríkissjónvarpið, SVT, fjallar um málið.
Maðurinn sem braut á stúlkunum er 31 árs gamall en yngsti þolandinn var 9 ára en elstu stúlkurnar 14 ára. Samverkamaður hans var ákærður fyrir vörslu barnakláms og fyrir að hylma yfir kynferðisbrot fyrrnefnda mannsins.
Maðurinn hafði samband við stúlkur á Snapchat sem margar hverjar voru undir 15 ára sem er kynferðislegur lögaldur í Svíþjóð. Hann braut á þeim á heimili sínu þar sem hann gaf þeim áfengi og eiturlyf til að þær gætu síður spornað við brotum hans. Hann ræddi opinskátt við samverkamann sinn um brotin og deildi með honum nektarmyndum af stúlkunum.
SVT ræðir við einn þolenda, 14 ára stúlku sem kölluð er Lisa en það er ekki hennar rétta nafn.
Hún var úti með vinkonum sínum og þær voru áhugasamar um að skemmta sér. Ein þeirra þekkti til manns sem hún vissi að gæti útvegað þeim áfengi og fíkniefni en það er umræddur maður sem ákærður er fyrir nauðganirnar fjórar. Hann bauð stúlkunum heim til sín og gaf þeim áfengi sem Lisu leið illa af en þegar leið á kvöldið vísaði hann vinkonum Lisu úr íbúð sinni og hún var ein eftir.
Maðurinn fór að snerta hana og hún þóttist þá vera þreytt en það dugði ekki til að halda aftur af honum og maðurinn nauðgaði henni. Lisa segist hafa beðið hann ítrekað um að hætta. Hún hafi fundið til og alls ekki viljað þetta. Hún hefur glímt við mikla vanlíðan eftir nauðgunina og átt til að mynda erfitt með að sækja skóla.
SVT ræðir einnig við móður Lisu sem kölluð er Anna en það sömuleiðis dulnefni.
Anna segir að þetta kvöld hafi henni borist skilaboð frá Lisu skömmu fyrir miðnætti sem voru á þessa leið:
„Gerðu það, hjálpaðu mér.“
Anna spurði þá hvort eitthvað væri að og hvort eitthvað hefði komið fyrir en Lisa bað hana að bragði að sækja sig. Anna hringdi þá í Lisu og spurði hvað hefði gerst en Lisa vildi ekki segja henni það. Anna bað þá Lisu að hringja í sig eftir korter svo hún vissi að allt væri í lagi en það símtal kom ekki og þegar Anna hringdi svaraði Lisa ekki.
Anna gerði sér þá grein fyrir eitthvað mikið væri að og hún hafði ekki hugmynd um hvar í Halmstad Lisa var og leitaði þá til lögreglu sem tókst, meðal annars með upplýsingum sem Önnu tókst að afla, að finna hana í íbúð mannsins. Lisa sagði lögreglunni að maðurinn hefði nauðgað henni en vildi hvorki leggja fram kæru né ræða nauðgunina en henni snerist síðan hugur og nú bíður maðurinn dóms.
Það er talið vel mögulegt að þolendur mannsins séu fleiri en þær fjórar stúlkur sem hann er ákærður fyrir að brjóta á.