fbpx
Laugardagur 23.maí 2026
433Sport

Stjarnan sýnir frá afleiðingum óhugnanlegra meiðsla – Myndirnar ekki fyrir viðkvæma

433
Þriðjudaginn 24. febrúar 2026 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ruben Loftus-Cheek, miðjumaður AC Milan, hefur sent stuðningsmönnum skilaboð eftir að hafa kjálkabrotnað og misst nokkrar tennur í harkalegum árekstri í leik gegn Parma um helgina.

Loftus-Cheek, sem er þrítugur, lenti í samstuði í leiknum og var borinn af velli áður en hann var fluttur á sjúkrahús. Hann reyndist kjákabrotinn og gekkst undir aðgerð sem tókst vel. Búist er við að hann verði frá í um átta vikur.

„Þetta var þungt högg, en það versta er yfirstaðið. Innilegar þakkir til alls heilbrigðisstarfsfólksins fyrir fagmennsku og umhyggju.

Ég vil einnig þakka stuðningsmönnum fyrir að sýna mér ótrúlega mikla ást og stuðning sem hefur veitt mér mikinn styrk,“ skrifaði Englendingurinn í færslu á samfélagsmiðlum.

Milan staðfesti að aðgerðin hefði gengið vel og að leikmaðurinn væri útskrifaður af sjúkrahúsi.

Allt á réttri leið.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Sjáðu ótrúlegt myndband: Leið yfir hann en fjölskyldan tók ekki eftir neinu

Sjáðu ótrúlegt myndband: Leið yfir hann en fjölskyldan tók ekki eftir neinu
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Liverpool að landa spennandi leikmanni

Liverpool að landa spennandi leikmanni
433Sport
Í gær

Tuchel mjög hissa á yfirlýsingu Maguire

Tuchel mjög hissa á yfirlýsingu Maguire
433Sport
Í gær

Auðunn Blöndal segir ótrúlega sögu frá New York – „Við fórum og létum þá vita að þú værir með þannig völd að þú gætir lokað þessum stað“

Auðunn Blöndal segir ótrúlega sögu frá New York – „Við fórum og létum þá vita að þú værir með þannig völd að þú gætir lokað þessum stað“