
Öryggisgæsla íslenska karlalandsliðsins í Mexíkó hefur verið aukin vegna eldims ástands í landinu.
Meira
Leikur Strákanna okkar hugsanlega í uppnámi
Eysteinn Pétur Lárssuon, framkvæmdastjóri KSÍ, segir frá þessu í samtali við Vísi. Glæpaforinginn Nemesio Rubén Oseguera Cervantes, kallaður El Mencho, var drepinn af hernum í nótt og í kjölfarið voru bílar brenndir, götum lokað og fleira af hálfu CJNG glæpagengisins.
Það er því óvissa með landsleik Íslands og Mexíkó aðfaranótt fimmtudags. Íslenska liðið er þegar mætt til Mexíkó til æfinga og verður staðan betur tekin á mönnum þar er þeir vakna, en klukkan er ekki orðin 7 þar ytra.
Fjórum leikjum í mexíkósku deildinni var frestað í nótt, tveimur í efstu deild og tveimur í næstefstu, meðal annars einum í í Queretaro, þar sem íslenska landsliðið er statt. Það á eftir að koma í ljós hvort landsleiknum verði frestað.